Blogg
18.3.2008
Feliz Pasquas!
Ef ég hefði vitað að það væri verið að TAKA ÞESSA TÓNLEIKA UPP Á VÍDJÓ þá hefði ég ekki HELLT HEILU STAUPI AF HOT AND SWEET yfir mig alla og hlegið. Ég hefði líka kannski ekki hoppað svona mikið og verið svona ýkt glöð með lífið. Ég hefði ekki misstigið mig svona í textum lagsins og sungið svona falskt.
Myndir og vídjó eiga að vera bönnuð þegar áfengi, söngur og dans blandast saman!
Annars fer senn að líða að páskum, Bjöggan þrítug á morgun og Eggert og Teddý flutt í einbýlishúsið... Majonesið orðið gult og fimmsomm óskar öllum:
Gleðilega Páska, megi páskaeggið vera yður ólýsanlega gott og málsháttur þér eindæmur viskubrunnur í því sem koma skal.
Eintóm páskaást, FIMMSOMM

13.3.2008
s...s...s...sssssssSSSálin!!!
á sálina fer ég nú
glöð og sæl í lund
vinstri, hægri, aftur snú
beint í mína sælustund
upp við sviðið ég kalla
stebbi æ lof jú
hina dömuna ég skalla
því gummi, lof jú tú
einn, tveir, þrír
bjórarnir flæða
og fætur blæða
troðningurinn eykst
senn líður að hey kanínu
stebbi þú mig sveikst
en tókst í staðinn nínu!
einn, tveir þrír
bjórarnir flæða
og fæturnir blæða
SJÁUMST Á SÁLINNI

7.3.2008
Fallega og fræga fólkið





4.3.2008
suddaleg rigning...

gleðilegan þriðjudag í góða veðrinu!

