|
Asdisar-heimasida FYRIR FJÖLSK-VINKONUR-VINI-KUNNINGJA OG FORDÓMALÍTIÐ FÓLK |
|
Færslur: 2008 Febrúar04.02.2008 20:30The computer ses no!!!David Walliams í tv-þáttunum "Little Brittain" og félagi hans eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Enda var ég glöð þegar synir mínir gáfu mér DVD-diska með þáttunum þeirra í afmælisgjöf, eins og alla Seinfield-þættina, algjör snilld. Allt fjölskylduvinir mínir, eða þannig! Nú tek ég undir orð Davids, þegar hann leikur fúlu ferðaskrifstofukonuna, með brjóstin upp í háls og stekkur ekki bros í leit sinni að ferðum í tölvunni. "Yeh I know, but im a lady and the computer ses no!!! Ástæðan fyrir því að ég hef ekki svarað neinum e-mailum eða bætt við á heimasíðuna mína er að tölvan mín segir NEI. Hún hlýðir mér ekki, þó ég reyni að starta henni 15 sinnum í röð. Hún er hrunin (eins og símanúmeraskráin mín í gamla gemsanum mínum, þegar ég skipti yfir í þann nýja.) Eða er tölvan brunnin yfir, eða bara búin að fá nóg af mér. Líklegast er þó að hún sé búin með sinn kvóta í aldri, kannski komin í úreldingu! Nú hef ég 5 möguleika í stöðunni: 1) Leita til Arnars bróður míns sem er m.a. tölvuséní og hann reddi málunum fyrir tæknihefta systur sína. 2) Fái að skjótast í tölvur sona minna. 3) Hætti bara með þessa blessuðu heimasíðu mína. 4) Lesi inn "vafasama" sögu með whyski- eða kisuröddunum mínum (á nokkrar raddir á lager með þjálfuðum raddböndum) inn á "umdeilda" símalínu! Fyrir kostnaði á nýrri tölvu. Gæti það þó ekki, því ég myndi detta oft úr "karakter" vegna hláturs og heldur ekki siðferðislega rétt. 5) Mun ákjósanlegri en liður 4). Það er, með orðaflaumi og handapati kjafta út einhvers staðar gamla tölvu eða eins og ég kann best: "Ég redda þessu einhvern veginn" eins og öllu sem þarf að redda. Þó ég þurfi að fara víða og tala klukkutímum saman. Einhvers staðar er lausn og svar, oft bjargað mér, að geta verið fylgin mér, með þrjóskuna, hógværð, þakklæti og vel valin orð, allt eftir því hvað við á, í einbeittri stefnu...."þetta skal reddast... og ef það reddast ekki, þá er málið bara dautt... og halda áfram... í næstu lotu..". Flettingar í dag: 0 Gestir í dag: 0 Flettingar í gær: 11 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 228559 Samtals gestir: 49252 Tölur uppfærðar: 10.2.2012 04:34:17 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Ásdís Sólrún ArnljótsdóttirFarsími: 862-2241Tölvupóstfang: asdissa@gmail.comAfmælisdagur: f. 20.júní 1957Heimilisfang: 107 Reykjavík, Iceland.Heimasími: 551-2241Tenglar
|