|
Asdisar-heimasida FYRIR FJÖLSK-VINKONUR-VINI-KUNNINGJA OG FORDÓMALÍTIÐ FÓLK |
|
Færslur: 2008 Desember24.12.2008 15:37JÓLAKVEÐJA TIL ÞÍN...Jólakveðja:) Mínar bestu hátíðarkveðjur til ykkar allra; fjölskyldu, ættingja, vinkvenna, vina, fyrrverandi starfsfélaga,-nágranna- og samferðamanna minna á lífsgöngunni. Einnig ykkar sem skoðið heimasíðuna mína. Óska ykkur öllum gleðilegra jóla, gæfu, góðrar heilsu og velfarnaðar á komandi ári. Með kæru þakklæti fyrir liðnar stundir, öll jólakortin sem hafa borist, ég sendi engin kort þessi jól, bæti úr því þau næstu:) Þakka ykkur einnig fyrir jólakveðjur í formi sms og í tölvupósti. Þið eruð mér ÖLL kær og eigið góðar stundir yfir hátíðarnar og á árinu 2009:) Ásdís. Skrifað af http://admin.123.is/AddUpdateBlogRecord.aspx 22.12.2008 18:32Þórunn Kristín Ásgeirsdóttir,f.07.01.1946,d.07.12.2008.![]() Mig langar hérna á síðunni minni, að minnast Þórunnar (kölluð Núra), sem lést á heimili sínu 7. des. sl. Núra var vinkona mín og frænka sona minna og stjúpdóttur. Það er alltaf tregafullt að kveðja, þó vitað sé að einhvern tíma á lífsleið okkar ber dauðinn að dyrum og enginn kemst undan að hlýða kalli hans. Nú standa fjölskylda, vinir og aðrir sem þóttu vænt um Núru, fyrir þeirri þungbæru reynslu sem fylgir brottför hennar. Sorgin og tilfinningar haldast í hendur, en eftir lifa minningar og svipmyndir sem tengjast Núru og hennar lífshlaupi. Orð mega sín lítils, er við nú kveðjum hana, en minning hennar lifir. Minningar um fallega konu, hjartahlýja sem vildi öllum vel. Hún var ákveðin og mikil tilfinningavera. Trú sjálfri sér í þeim jákvæðu gjörðum sem hún hugsaði um og tók sér fyrir hendur. Henni hlotnuðust góðar gáfur, næmi gagnvart fólki, og hélt oftast takti í lífsdansinum á góðum stundum sem erfiðari. Núra hafði skemmtilega og áhugaverða frásagnarhæfileika. Glaðværð og ógleymanlegan dillandi hlátur. Við Núra kynntumst ungar og náðum strax vel saman með sameiginlegum samhljóm á ýmsum sviðum. Í nær daglegu símasambandi okkar í mörg ár, gátum við rætt það sem okkur lá á hjarta og sögðum hvor annarri sögur með tilheyrandi hlátursköstum. Það var létt og gefandi að hlæja með Núru. Stundum tókum við hvor aðra á beinið, margt sem betur mætti fara í daglega lífinu. Virtum skoðanir hvor annarrar, vorum sjaldan ósammála en stundum rákumst við á veggi. Núra átti eins og aðrir, sína góðu daga en vegna veikinda oft verri tíma. Árin liðu og við duttum úr símasambandi. Fyrir tæpu ári sló Núra á þráðinn til mín, eftir rúman áratug. Hún kynnti sig og við byrjuðum að skellihlæja, eins og forðum daga. Töluðum lengi saman og vorum sammála um að það væri eins og við hefðum aldrei misst sambandið, heldur talað síðast saman í gær. Síðan höfum við verið í sambandi, stundum daglega. Henni fannst líka ánægjulegt að spjalla við syni mína og hennar frændur. Lagði þeim lífsreglurnar, sagði þeim sögur og hló með þeim. Ef þeir voru í vinnu og svöruðu ekki farsímunum, þá var Núra ráðagóð og lét kalla þá upp í símann. Núra okkar hringir ekki framar, heimilis-síminn nær þagnaður. Ekkert okkar renndi í grun að síðustu símtölin við hana, yrðu þau síðustu. Það var jafn-auðvelt að þykja vænt um Núru, eins og það gat stundum verið pirrandi í dagsins önn, ef hún sló á þráðinn oft á dag. Núra dvaldi nýlega á Reykjalundi. Stóð sig með prýði og kom tvíefld og hress til baka. Hún hugsaði ætíð vel um útlit sitt og átti falleg og heimilisleg heimili. Hlakkaði til jólanna og sérstaklega þegar Þórir, bróðursonur hennar, og fjölsk. kæmu til landsins. Núra var ætíð í góðu sambandi við móður sína, Oddfríði og fjölskyldu þeirra. Missir þeirra er mikill og megi mildi Guðs lina söknuð þeirra og veita þeim styrk í sorginni. Lífsljós Núru, hér í þessari jarðvist er nú slokknað, en hún vissi að vel yrði tekið á móti henni. Við fjölskyldan söknum og minnumst hennar með virðingu, þakklæti fyrir hlýjan hug, vináttu og tryggð. Guð geymi Þórunni Kristínu. "Og það er margt sem þakka ber við þessa kveðjustund. Fjör og kraftur fylgdi þér þín fríska, glaða lund. Mæt og góð þín minning er og mildar djúpa und." (G.Ö.) Ásdís og fjölskylda. ![]() Núra á góðri stund. Mynd sem hún gaf okkur nýlega og okkur þykir vænt um. Við biðjum Guð að gæta þín og greiða veginn þinn. Skrifað af http://admin.123.is/AddUpdateBlogRecord.aspx 09.12.2008 20:44NÚVERANDI OG FYRRVERANDI KONUR...Fyrir næstum 28 árum voru dætur okkar beggja hjá sömu dagmömmunni í Breiðholtinu. Þá vorum við mæðurnar báðar ungar, frískar og sjaldan kalt. Ekki vissum við þá, að jafnmörgum árum síðar lægju leiðir okkar aftur saman og yrðum í góðu sambandi. Hún sem núverandi kona barnsföður míns og ég hans fyrrverandi sambýliskona. Nú er kalt á Fróni. En kuldinn nær inn í okkar sálartetur. Í dag ræddum við m.a. um áhyggjur okkar, vanmátt og ótta gagnvart veikindum "HANS." Við berum gæfu til að virða hvor aðra, deilum reynsluheimi, líðan og reynum að styðja hvor aðra, honum til góða. Þegar hennar maður og barnsfaðir minn hefur verið á sjúkrahúsum, hefur hjúkrunarfólk og læknar sagt: "Að sjaldgæft sé í heimsóknum að sjá svo gott samkomulag milli núverandi og fyrrverandi kvenna. Læknir bætti við: "Oft fer allt í háa loft og jafnvel handalögmál," við slíkar aðstæður. Við brosum að því, enda sjóaðar konur með lífsreynslu-bakpoka í eftirdragi. Þó við séum báðar með lélega líkamlega heilsu, þá ræðum við það minna. Honum þarf að batna með sinn erfiða sjúkdóm. Við erum enn "survival"-konur og hann var hér á árum áður, heljarmenni! Breytingar á lífsmunstri og skoðunum..: Staða okkar þriggja er ekki söm í dag og fyrr á árum. Ekkert okkar kunni að meta heilsuna, hún var eins og sjálfgefin hlutur sem var komin til að vera um aldur og ævi. Nú er hann langt genginn sjúklingur og skiljanlega ósáttur við það. Í dag erum við meðvitaðri og nokkuð þroskaðri. Því lifum við nú öll í friði á milli okkar, með orðum og nærveru. Höfum fyrirgefið, hægri, vinstri, allt það erfiða sem áður var. Kannski þarf fólk, sem ég á erfitt með að fyrirgefa af heilum hug, að verða miklir sjúklingar, til að ég nái þeim þroska? Hvað eru tár? Ásgeir H.P. Hraundal, afi barnsföður míns, gaf út ljóðabókina "Draumsjónir" árið 1929. Tek mér það leyfi að birta hér eitt ljóða hans, en sleppi síðasta erindinu. HVAÐ ERU TÁR? Hvað eru tár? Minningar svika og sorga, söknuður fallinna borga, það eru tár. Hvað eru tár? Blæðandi, sárustu sárin, sjálftöpuð fegurstu árin, það eru tár. Hvað eru tár? Ástvina einlægra missir, allt sem þú þráðir og vissir, það eru tár. Tilfinningaflóra okkar allra er fjölbreytt. Sumar veita gleði og hamingju. Aðrar eru auðveldari að fela, hunsa og jafnvel afneita. Tár sem renna niður kinnar, á erfiðum stundum, eru sjáanlegar tilfinningar. Skrifað af http://admin.123.is/AddUpdateBlogRecord.aspx 03.12.2008 22:38ÞYRNIRÓS SVAF...HVAÐ?Rúm vika síðan ég flutti aftur í gamla hjónaherbergið, eftir nokkra ára dvöl í borðstofunni. Hvað er þetta eiginlega með mig og hjónasængina? Ég bara sef og sef sem aldrei fyrr. Veit að ég er blóðlaus með meiru, fæ niðurstöður á morgun hjá nýrnalækninum. Nú er ansi rúmt um mig, með heilan vegg af skápum og svalir. Ég ákvað að vera raunsæ og skynsöm í fatavali mínu, þ.e. hvað færi í fataskápana. Engar líkur á að ég passi aftur í Levis-buxur nr. 27. Fyllti því 2 fulla svarta poka af fataplöggum sem ég mun ekki "grennast" í. Allt í pokana nema Levis-buxur nr. 32, dundaði við að brjóta saman, sparibuxur, pils, kjóla, þrönga boli ásamt peysum og öðrum góðum flíkum. Fór í smá nostalgíukast, sérstaklega yfir öllum skónum og leðurstígvélunum, sem ég var búin að gleyma að ég ætti. Bless allt saman og beint í Rauða krossinn. Jóla..jólaseríur..: Þyrnirós svaf yfir sig í morgun, meðvitundarlaus í skammdeginu og pökkuð inn í 2 sængur. Fékk áfall og móral að hafa ekki mætt í vinnu. Leit á klukkuna og hún sló hljóðlaust 12:00. Brá í brún að sjá að nágrannarnir voru búnir að setja jólaseríur á svalirnar og jólaljós í regnboganslitum í gluggana sína. Ég fúl og hugsaði: "Hvað, ert þetta nú ekki full-snemmt?" Áttaði mig með úfið hár að það styttist til jóla. ..með grænum greinum...: Undanfarin jól hafa verið í skugga sorgar, vegna þeirra sem kvatt hafa þessa jarðvist. Jólin koma, þó aðstæður geti verið erfiðar. Jólaboðskapurinn stendur fyrir sínu og minnir okkur m.a. á falleg og kærleiksrík viðhorf. Þyrnirós er að fara að sofa: Nú gæti ég vaðið á súðum um kvíða, ótta og depurð sem margir upplifa nú vegna margvíslegra breytinga í okkar þjóðfélagi. En læt hér staðar numið, ætla að vakna á morgun og fara í vinnuna. Kl. 15:00 á morgun, eftir blóðprufu-niðurstöðurnar mínar, hvernig sem þær munu koma út, mun minn jólaundirbúningur hefjast með brosi, trú og von. Góða nótt, geng nú til svítu minnar og hendi óttanum í lokuðum Bónus-poka niður ruslarennuna:) Skrifað af http://admin.123.is/AddUpdateBlogRecord.aspx Flettingar í dag: 0 Gestir í dag: 0 Flettingar í gær: 11 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 228559 Samtals gestir: 49252 Tölur uppfærðar: 10.2.2012 04:11:39 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Ásdís Sólrún ArnljótsdóttirFarsími: 862-2241Tölvupóstfang: asdissa@gmail.comAfmælisdagur: f. 20.júní 1957Heimilisfang: 107 Reykjavík, Iceland.Heimasími: 551-2241Tenglar
|