Asdisar-heimasida

FYRIR FJÖLSK-VINKONUR-VINI-KUNNINGJA OG FORDÓMALÍTIÐ FÓLK

Gestabók

18.7.2009 kl. 21:14

Till Àsdis o fjölskilda

Vi kommer till Island 25- 31/8.
Det vore trevligt om vi kunde träffas då.

Òmar, Birgittao Samuel

27.9.2008 kl. 13:24

Til Sjafnar Ingólfsd.

Kæra Sjöfn mín.
Þakka þér fyrir og tek einnig undir orð þín að hittast, (ekki bara í jarðarförum) og hafa það gaman. Við förum nú allar/öll létt með það :)
Við "Kúlu"-systur sváfum eins og sveskjur á bernskuslóðum og ættaróðali þínu og þinna. Ekki leitt að vakna með koddafar á kinn, endurnærð og anda að sér fersku norðlensku lofti með slatta af fortíðarþrá í huga, tengdum liðnum tímum.
Bestu kveðjur til þín og þinna.

Ásdís :)

26.9.2008 kl. 18:03

Flottar myndir að norðan

Sæl heillin góð. Var að skoða myndirnar að norðan, svaka flottar. Já - takk fyrir síðast þetta tókst allt saman frábærlega hjá ykkur. Látum nú ekki bara jarðarfarir og slíka atburði eina verða til þess að við hittumst, heldur gerum eitthvað annað skemmtilegt.
Annars bara allra besta kveðja. Sjöfn

Sjöfn Ingólfsdóttir

3.9.2008 kl. 18:55

Til hamingju

Kæri Nökkvi.

Mínar innlegustu hamingju óskir með daginn.

Lifðu í lukku en ekki í krukku.

Jóhanna

www.123.is/alfarun

30.8.2008 kl. 2:29

Bloggablogga

Í fyrra sagðir þú að haustið væri þinn tími. Nú er það komið og er sammála mágkonu þinni og blogga svo,,

Sigrún

30.8.2008 kl. 2:08

Flott

Hae hae.

Flott nyja lukkid, nu vantar bara gott blogg ala Asdis.

Kvedja
Liney

Liney

22.7.2008 kl. 9:14

Vid komumst alla leid.
Sumar kvold i kjosinni eru alltaf god.
Knus fra okkur

liney

10.7.2008 kl. 13:40

Heimshorna-ferðalangar.

Elsku Líney, Guðmundur, Diljá og Addi.
Já, KERLINGIN klikkar ekki á myndatökunum með sína "skran-"myndavél. Það var gaman að fá að hitta ykkur hér, þið hjónin eldist ekkert og Diljá og Addi fjall-myndarleg, .. svona eins og þau eiga kyn til :) Góða ferð til Nýja-Sjálands og góða heimkomu. Bestu kveðjur frá öllum og takk fyrir pakkann. Heyrumst :)

Ásdís :)

9.7.2008 kl. 0:38

Asdis min vissi ad eg gaeti treyst i thig med myndir og helstu frettir af atburdum i fjolskyldunni.
Sjaumst
Liney

Liney

!!!!!!!!!!!

20.6.2008 kl. 21:41

Til hamingju með afmælið!!

Hæ hó!
Hjartanlega til afmælið elsku mamma/amma! Bestu kveðjur frá Kaliforníu, Hrefna, Finnur, Anna og Bjarki.

Hrefna, Finnur, Anna og Bjarki

http://hrefna.com

6.6.2008 kl. 19:48

Takk..:)

Bestu þakkir fyrir kveðjuna Jóhanna mín. Jú, og þú átt alltaf eitthvað í Bjarna, sem einu sinni var lítill og við fórum í ógleymanleg ferðalög með þér...svo er hann bara allt í einu orðinn 17 ára:)

Þín vinkona Ásdís

5.6.2008 kl. 19:55

Til hamingju

Til hamingju með hann Bjarna þinn, gaman að skoða gömlu myndirnar,allt stutt í brosið hjá Bjarna mínum.Myndin af honum verður allt á ísskápnum hjá mér,kær kveðja

Jóhanna

www.123.is/alfarun

26.5.2008 kl. 23:33

Hamíngjuóskir

Til hamingju með stúdentinn Ásdís dugnaðar drengir sem þú átt.Og myndarleg barnabörn.

Ársæll

13.5.2008 kl. 14:58

Veiðisumar...

Kæri Ársæll.
Þakka þér góðar kveðjur. Megið þið Jóhanna eiga gott sumar, með og án barnabarnanna og mok-fiska, grilla og chilla saman:)

Ásdís

12.5.2008 kl. 13:01

Til hamíngju

Með að vera búin að fá barnabörnin dóttur og tengdason heim,eigðu góðar stundir með þeim

Ársæll

26.4.2008 kl. 20:30

Hallo!
Det var en flott hemsida, du har. Det var kul att se alla bilder.

Òmar, Birgitta o Samuel

14.4.2008 kl. 23:53

Vitavörður, vinna á bar....hús og kannski maður...:)'

Sigrún mín, ég vel auðvitað frekar að vera Dísa vitavörður og láta hafgoluna leika um hárið en að vinna á bar. Með fasta áfengislykt í hári og fötum. Þú segir að ég sé kröfuhörð á hús og hvað með manninn!!!

Nú, eitt skal yfir allt ganga, hús og mann. Húsið má vera steinsteypt eða úr timbri. Maðurinn má vera fastur fyrir en kostur að vera sveigjanlegur. Húsið má vera á einni hæð eða fleirum. Maðurinn þarf að vera yfir 1,80 cm á hæð. Húsið má vera nýtt eða með sögu og sál. Maðurinn má vera "fortíðarlaus" eða í black-outi yfir öllu því liðna, en kostur að vera lífsreyndur og hafa lært af fortíðinni. Gluggar hússins mega ekki gráta, maðurinn má ekki drekka áfengi í húsinu, nema hann höndli það. Í húsinu þurfa að vera 4 svefnherb. Maðurinn þarf að þekkja til 12 spora kerfisins, aðallega fyrstu 4 sporin. Eldhúsið má vera rúmgott, maðurinn þarf að kunna að elda, ekki vaska upp, þrífa eða setja í þvottavél. Æskilegt að sólpallur sé við húsið. Maðurinn þarf að hafa húmor og aftur húmor og geta setið með mér á pallinum, tímunum saman í spjalli og hlátri. Að mála megi húsið, maðurinn má vera með tattoo eða ekki. Í lagi þó nöfn allra hans fyrrverandi kvenna séu letruð á brjósti hans. Grindverkið í kringum húsið má vera í lamasessi. Maðurinn má dunda sér við að laga það á nokkrum árum.Bílskúr er kostur. Maðurinn getur haft þar afdrep, því hann má vera öryrki en kostur ef hann væri í vinnu. Húsið þarf ekki að vera fullkomið, maðurinn ekki heldur, frekar en ég sjálf. Jú, Sigrún mín, það stendur enginn undir þessum kröfum hehehe, this is me. Það er reyndar dulúð og rómantík yfir vitavörðum :) See you.

Ásdís

14.4.2008 kl. 22:11

...gæfustaðir dauðans í RVK...

Áslaug stelpuskottið mitt:) Vel orðað hjá þér, enda ferðu létt með að skrifa. Hvernig væri að stýrimannsfrúin í Grindavík gerði heimasíðu og byrjaðir að blogga,hefur allt í það.

Veit að þú blómstrar þarna, og þá skiptir engu máli hvernig gardínur maður hefur, ekki satt :) Hringi næst í þig þegar ég verð með símtólið á öxlinni, skipti á rúmum með þeirri hægri og þurrka af rimmmmmmlunum með þeirri vinstri. Einn daginn birtist ég í Grindavík, og áfram á sömu braut Áslaug mín.

Ásdís

14.4.2008 kl. 13:49

Ljómandi að vita að þú ert á lífi vinan

Jæja Dísa það er nu gott að vita að þú ert á lífi elskan ég er enn að bíða hér í grindavík eftir þér láttu nu heyra í þér getur verið rettu í annarri og tusku í hinni að þrífa rimmlana og svo tólið á eyranu heheh

Áslaug

7.4.2008 kl. 14:22

Kefffflavíkurnætur.

Gaman að hitta þig - og minni þig á að ég er búin að tékka pleisið. Veit um fáa góða menn bara góð hús. Þú færð vinnu strax á bak við barborðið-flott í 3 pörum af ullarsokkum hehhe. Veit að þú ert kröfuhörð á hús en hvað með manninn hehe. Smjúts á þig og kaffið.

Sigrún

5.4.2008 kl. 23:03

já mar klikkar ekki á stakknum hehe

Já er lóan komin hjá Geira líka hjúkket hehe. Já mar setur ekki fyrir sig að klæðast STAKK Dísa mín:-)Dísa mín þau eru nu ekki mörg skröllinn okkar saman en fjandi eftirminnileg sko því það tekst ekki öllum að draga mig inná gæfustaði dauðans í RVK hehhhe en í grindavík er nu ekki um marga staði að velja og held ég að þú yrðr fínt husgagn á lákanum hehe þar þarf maður ekki sjóhatt,stakk og stígvel.

Áslaug villingur

5.4.2008 kl. 22:06

Sjóhattur, stakkur og stígvél :)

Hjartkæra Áslaug mín, fyrrum borgarbúi og nú Grindverji.

Nú skín gæfustjarnan yfir þér og þínum. Held að lóan sé kominn hjá Geira á Goldfinger, og ég kem til þín þegar hún syngur fyrir þig í Grindavík. Þá getum við frussað af hlátri, raðað frímerkjum og saumað bútateppi hehe. Að fenginni reynslu þinni, veistu að fara á skrall með mér, þá borgar sig að klæðast stakki (kallað pollagallar af borgarhyskinu.) Þú sem sjómannsfrú hlýtur að hafa þá á lager hehe. Ég kíki fyrst á húsið, svo aftur á húsið og síðan á manninn :) Mála bæinn rauðan og ef það fælir ekki manninn frá, þá er eitthvað VARIÐ Í HANN :) Grindavíkurbúar eiga eftir að komast að hversu frábær og klár dugnaðar-Áslaug er flutt á svæðið. Áslaug mín, ómetanlegar þakkir til þín fyrir oft ÞOLINMÆÐI og allt sem við höfum brallað saman í gegnum tíðina. Áfram Áslaug, áfram Grindavík:):)

Þín vinkona Ásdís borgardama:)

5.4.2008 kl. 21:06

Jæja Ásdís koma SVO

Heyrðu Ásdís mín lóan er komin en ekki þú hvað er málið? Mar bara spyr sko heheh en annars er bara allt ljómandi hér í Grindavík strákarnir og ég aðlögumst bara nokkuð bara nokkuð vel miðað við allt sko. Held ég sé búin að finna mann fyrir þig já og ef ekki hús líka hehe. Bíð svo bara spennt eftir að fá þig í heimsókn með rauðu málninguna:-)

Áslaug Grindverji

2.4.2008 kl. 12:45

Ekkert laumast í Grindavík !!!

Jæja Ásdís og mundu að koma í kaffi. Það eru líka til sölu flottar eignir hérna. Þú fengir vinnu stax á barnum þínum hehe eða viltu vera vitavörður!!:)Mundu að láta sjá þig þegar þú ferð til vinkonu þinnar í Grindav. Bloggið þitt er bara allt komið aftur inn, byrjaði að lesa það allt aftur í morgun og reddar deginum hehehe. Sjáumst og farðu nú að losna við kvefið.

Sigrún

31.3.2008 kl. 21:35

Heimasíðan er óvirk.

Elsku vinkonur, vinir, fjölsk., fyrrum vinnufélagar, kunningjar og aðrir sem skoða síðuna mína. Heimasíðan mín virkar ekki, bloggið horfið og allar myndirnar í einhverju rugli. Búið að vera svona í nokkra daga og verður vonandi kippt í lag sem fyrst. Ég hef ekket með þetta að gera, er bara þolinmóð með mína flensu sem hefur staðið í rúman mánuð. Það er verið að skipta um kerfi á 123.is, því virkar síðan ekki.

Með kveðju frá Ásdísi.

10.3.2008 kl. 14:04

Þú tekur þetta með trukki...

Elsku Grindavíkurmær :)
Nú tekur þú þetta með trompi með glaðværð þinni og dugnaði. Gengur í leikfélagið, kvennfélagið o.fl. Ég gæti hinsvegar spáð í spil og bolla, strekkt dúka og skerpt skauta á meðan tú býður upp á ost og þrumu-grauta. :):)

Þín vinkona Grindavíkur-Dísa:):)

9.3.2008 kl. 20:36

Elsku Ásdís

Klikkaði smá hjá mér í fyrra skeytinu þetta átti að vera svona

þín vinkona Áslaug

9.3.2008 kl. 20:34

GRINDAVÍK

Það er ekki hægt að finna jákvæðari og betri vinkonu en þig skilur allt svo vel og mundu svo að kíkja á fasteignirnar í Grindavík á morgunn hehehe í fasteignablaðinu flott hus hér á sama verði og íbúðirnar okkar í rvk meira segja nýbyggingar þetta er ekki spurning sko :-)

Elsku Ásdís

9.3.2008 kl. 18:44

Til Áslaugar gæfukonu.

Elsku vinkona.
Mikið grín og gaman í spjallinu okkar í dag. Eigðu góðar stundir i Grindavík. Fyrst kemur lóan í vor og svo ég í heimsókn. Rétt, verð fljótari til Grindavíkur en í Grafarvoginn :)

Þín vinkona Ásdís

9.3.2008 kl. 17:57

disa parket meistari

Jæja Ásdís þú verður bara að koma í Grindavíkina og sjá hvað þetta er yndislegt hérna ja og heldur betur ég flyt á undan þér þangað enginn spurning hehe bíð bara eftir þér allavega meiri líkur að þú droppir hér í kaffi heldur en í grafavoginn heheh

Áslaug

21.2.2008 kl. 21:31

Tell me a story...sögu stutta eða langa!

´Hvað er þetta með þig Ásdís, ólíkt þér að vera ekki búin að redda þér tölvu. Komin fermingartilboð á tölvum. Sakna bloggsins og inn með fleiri myndir. Sé þig aftur á morgun og þá verður kátt í höllinni :):):)

Kristín G.

8.2.2008 kl. 23:31

HAVANA GILA!!

Takk fyrir spjallið áðan. Ítreka aftur að þú haldir áfram að blogga og setja inn myndir. Gleymi ekki þegar við kynntumst bara 5 ára á róló. Ég með sand og tár í augunum og þú reyndir að þurrka í burtu og ekkert gekk. Þá klifraðir þú upp á grindverkið og horfðir yfir Freyjugötuna. Kallaðir á Tóta á Baldursgötunni og baðst hann að syngja fyrir mig -Havana Gila og það virkaði. Nú vildi ég að Tóti gæti fundið fyrir þig tölvu og sungið fyrir okkur, Havana Gila eins og hann gerði oft eftir þetta.

Auður

23.1.2008 kl. 14:38

Til Möttu, USA

You´ve Got Mail :)

Ásdís

22.1.2008 kl. 20:02

Til Rebekku:)

Kæra Rebekka mín. Takk og ég gleymi þér heldur aldrei. Þú alltaf verið falleg, ljúf og dugleg stúlka. Það var líka krúttleg, ljóshærð lítil stúlka sem ég passaði eitt kvöld í Breiðholtinu. Þú ca. 2ja ára, skýr og sagðir við mig, þegar ég tók á móti þér: "Ég er bara í pössun hérna en á ekki heima hérna.":) Gangi þér og syni þínum allt í haginn og gæfan elti ykkur á röndum.

Ásdís

22.1.2008 kl. 19:42

hæhæ bara kvitta fyrir mig....dóttir steinunnar:)gaman að geta séð þig ásdís mín.ég gleymi þér aldrei:)

Rebekka

19.1.2008 kl. 15:36

Bjarni Leifur

Thank you for allowing me to see my little brothers world

Matta

18.1.2008 kl. 8:15

sæl Asdis eg skoða oft heimasiðu þina og Johönnu og hef gaman af ,ja stelpurnar okkar eru ju fallegar en rifast ens og Hundur og Kottur kv leifur

Leifur Gudmundsson

24.12.2007 kl. 15:24

Gleðileg jól.

Kæra Ásdís. Óska þér og þínum börnum gleðilegra jóla og farsælt komandi ár. Samúðarkveðjur til ykkar vegna frænku ykkar. Sjáumst á nýja árinu.

Kristín G.

13.12.2007 kl. 10:59

HUGSA TIL ÞIN

GANGI ÞER VEL 'I DAG. HAFDU SAMBAND VIÐ MIG ASDIS MIN EVAÐ EF AÐ ÉG GET GERT EITKVAÐ, KEYRT ÞIG EÐA EITHVAÐ. ALLAVEGA ÞETTA FER ALLT VEL. ÞINN BJARNI

ÞINN BJARNI H

12.12.2007 kl. 22:46

Gangi þér vel.

Ásdís mín. reikna ekki með að hitta þig á horninu okkar í Lágmúlanum fyrir vinnu á morgun. Vona að allt gangi vel hjá lækninum, takist vel og þú verðir fljót að jafna þig.

Auður

8.12.2007 kl. 14:09

Til Bjössa Run:)

Takk fyrir þetta í gestabókinni minni. Gaman að hitta þig á bensínstöðinni um daginn,(afgreiðslumaðurinn heitir Hörður en ég skírði hann Óla, hvað! munar engu:) Ég búin að segja "öllum" að þú sért ekki deginum eldri í útliti en í Klúbbnum eða Holly hér forðum. Enda flottur í vinnugallanum. Heyri í Bjarna Leifi á eftir og hann verður glaður að fá kveðju þína. Bestu gæfuóskir til þín og þinnar konu og ÁFRAM VEGINN Bjössi minn:) og kveðja til Péturs.

Ásdís

8.12.2007 kl. 12:00

Frú Ásdís

Hæ Ásdís mín,konan rakst á heimasíðuna þína og kallaði á mig,hvort ég þekkti ekki hina og þessa í myndaalbúminu þínu,og jú ég þekkti þá nokkra,bið að heilsa Bjarna Leifi og þér sjálfri.Kv Bjössi Run

Björn Runólfsson

6.12.2007 kl. 19:46

Takk fyrir síðast


Flott heimasíða hjá þér, ég er búin að vera að skoða hana af og til. Komdu í kaffi ef þú átt leið um, ég er alltaf hérna (í vinnunni) bestu kveðjur, Steinunn.

Steinunn Marinósdóttir

20.11.2007 kl. 9:24

Eigðu góðan dag

Gangi þér vel í vinnunni í dag og góða skemtun í bíóinu í kvöld.

Ársæll

31.10.2007 kl. 15:50

Kæra Ásdís.

Takk fyrir hlý og falleg orð í minn garð.
Hafðu það alltaf sem best.

Kær kveðja.

Gunnhildur.

gunnhildur hreinsdottir

23.10.2007 kl. 23:59

Mögnuð kona!

Ég rakst á síðuna þína hjá henni Bennu. Ég er búin að lesa allt sem er hér á síðunni sem birtist manni fyrst og ég er heilluð. Þú ert einlæg og merkileg kona. Ég sjálf lifði af heimilisofbeldi og þóttist góð með það. Nú er ég í enn verri sporum en það hlýtur að lagast,breytast og verða viðráðanlegt. Ég ætla að setja síðuna þína í uppáhald hjá mér og fá að njóta og koma oftar að lesa.
Takk fyrir mig

Ragnheiður Hilmarsdóttirr

http://www.hross.blog.is

16.10.2007 kl. 15:23

Til Gunnhildar með innilegri kveðju yfir hafið.

Kæra Gunnhildur.
Takk fyrir falleg orð, nei, mér hefur ekki dottið í hug að skrifa bók:)
Ég hef fylgst með þér, Jóni, Orra og Helenu á Hrefnu heimasíðu. Þið eigið bráð-myndarleg börn, eins og þau eiga kyn til. Þú hefur allt sem góða konu getur prýtt, með persónuleika og fegurð. Stundum hef ég saknað okkar samverustunda og hugsað til þín. Þó margt hafi breyst, verður þú þó alltaf mágkona mín:):)
Bestu kveðjur til þín og þinnar fjölskyldu.

Ásdís

11.10.2007 kl. 15:33

Sæl Ásdís mín.

Takk fyrir afmæliskveðjuna. Þú ert snilldarpenni, hefur það aldrei hvarlað að þér að skrifa metsölubók.

Hjartan kveðja.
Gunnhildur.

gunnhildur hreinsdottir

6.10.2007 kl. 10:50

Hreinskilni

Takk fyrir alla kaffibollana og hvenær er næsta kaffi? Áhugavert og heiðarlegt bloggið þitt og ég var að lesa um geðraskanir og lífsreynsluna.

Auður

20.9.2007 kl. 13:37

Sumum þarf ekki að fyrirgefa

Gott að lesa bloggið aftur um það sem ég hef verið að vinna í. Þú sagðir einu sinni að ég væri valtari og takari sem væri þiggjandi og ábyrgðarlaus. Ég þarf ekki að fyrirgefa þér þessi orð því þau voru sannleikur þó ég væri brjálaður út í þig í 2 dga. Held líka að fáir hafi beðið þið að fyrirgefa sér þó oft væri það rétt. Þú hefur kjark, visku, ábyrgð og lífsreynslu og fáir færu í þín spor. Takk og blogga áfram

Jónsi

6.9.2007 kl. 16:47

Takk fyrir

Takk fyrir mig og njóttu vel og lengi,
Hlakka til að hitta þig.

Bond hennar Jóhönnu

6.9.2007 kl. 14:04

Takk Bond

Til Bonds hennar Jóhönnu.

Thomas&Thomas bolir vandaðir af gerð,
með þakklæti fyrir hugulsemi þína.
Þið Jóhanna blómstrið á ástarferð,
og eigið saman dagana fína.

Bond-sultan tilbúin og nú er kátt,
Samgleðst ykkur og við orðin sátt.
Kaffi við drekkum sem fyrst,
og borðum bláberjasultu af bestu lyst.

Ásdís

1.9.2007 kl. 23:45

I miss you and I miss you

Hvenær á að hætta í þrjóskukastinu? Íhugaðu tilboð mitt og það er rétt hjá þér þegar þú syngur its a thin line between love and hate og hvað ætlar þú að syngja þetta í mörg ár ? Boðið stendur enn og mun standa þar til þú segir já

Þinn eini og eini og eini, sama hvað þú segir.

24.8.2007 kl. 16:07

Góð hugmynd hjá þér:)

Elsku Áslaug kærleiksbjörn:)

"Klakabandafjölskyldan" í nokkra ættliði, á nútímamáli kölluð "frostpinnafjölskyldan" okkar mun nú breytast með okkar ættlegg í "kærleiksbjarnafjölskylduna." Við hittumst einu sinni í mánuði, sýnum kærleik, hlýhug, grínumst, stöndum saman, FÖÐMUMST og knúsumst. Þá segja þeir líklega sem kvatt hafa þessa jarðvist "hvaða uppátæki eru nú þetta í þeim" humm og humm:)

Eins og þegar við, þú 3 ára og ég 5 ára keyrðum einar, skiljanlega í óleyfi, gömlu Massey Ferguson-dráttarvélina niður Auðkúlutún og öskruðum af kæti. Áttum síðar eftir að ergja Svínavatnshreppsbúa á hljómsveitaræfingum okkar, þegar "tónlistin" bergmálaði um dalinn. Hreppsbúar kunnu lítið að meta "sköpunarkraftinn" og hringdu í ömmu og kvörtuðu. Þá hummuðum við og fussuðum yfir sveitungunum.

Hlógum svo stanslaust í heimsóknum á aðra bæi og frussuðum volgu mjólkinni út um öll borð. Þar til við hættum að fá að fara með í heimsóknir. Þóttum ekki heimsóknahæfar. Þá lékum við lausum hala heima á Kúlu í staðinn og brölluðum margt með Guðmundi bróður. Guðmundur vaktaði Steinu, á meðan stálum við dráttarvélinni. Þú á pallinum með allt nammið og gosflöskurnar, ég botnaði dráttarvélina undir lögaldri á þjóðveginum. Bölvaði umferðinni "hvað er allt landið í bíltúr hérna einmitt núna." Pallurinn brotnaði og þú skallst illilega niður í veginn, en hélst á öllum gosflöskunum heilum upp í loft. Þetta var gert í krafti tilbreytingar og að komast í einu sjoppuna í sveitinni við Blöndubrú.

Ásdís kærleiksbjörn og Álagranda-kærleiksbræður:)

24.8.2007 kl. 12:54

Kærleiksbjarnadagurinn

Gott að eiga einn kærleiksdag í mánuði. :)

Áslaug kærleiksbjörn

11.8.2007 kl. 18:41

Ásdís

Amen eftir efninu.

Bond

11.8.2007 kl. 18:16

Óþarfar uppákomur. Til Bonds frá Ásdísi

Hr. Bond, við þekkjumst ekkert og höfum aldrei hist. Leiðir okkar Jóhönnu þinnar sem vinkonur hófust fyrir 14 árum í fallegu gulu húsi við Tjarnargötuna. Þar sem við deildum lífsreynslu með sama markmið með sporunum 12.

Hr. Bond, þú hefur þekkt hana í nokkrar vikur og ég virði fullkomlega ykkar stundir og samgleðst ykkur á hamingjubraut. ÁFRAM þú og hún:)

Eins og þú átt eflaust vini sem þekkja þig og gert margt ánægjulegt með, þá hljótið þið stundum að hafa ykkar einka-húmor. Ef ekki, þá upplýsi ég þig, að þannig eru KERLINGAR. 007-Sean Connary- og Mundi eiga sér langa sögu m.a. í okkar prívat-húmor.

Tilgangurinn með orðum mínum með þessa "menn" var ekki að særa þig, heldur KERLINGA-grín. Legg því til að við skorum hvort annað EKKI á hólm. Heldur reynumst Jóhönnu vel, þú sem kærasti hennar og ég sem gömul vinkona. Því ég verð m.a. viðstödd giftingu ykkar:):) Hafi ég sært þig eða vegið að þér með orðum mínum, bið ég þig að fyrirgefa mér. Megi hamingja og sátt umvefja ykkur og veita ykkur ánægjulega daga.
-Ásdís

Ásdís

11.8.2007 kl. 0:13

Nú er mér brugðið Dísa mín!

Eins og svo oft áður þá var ég að kíkja á síðuna þína. Þú veist að það er eitt af því sem ég geri reglulega og gaman fannst mér að sjá að þú og strákarnir hafið átt gott frí og einnig hvað hann Bjarki litli dafnar vel.
Það sem ég var að lesa núna í gestabókinni þinni er nú eitthvað sem að varð til þess að ég fékk kuldahroll um mig. Víst veit ég að það eru mörg dýrin í skóginum sem þú þekkir, misjafnlega vel liðin af öðru fólki en aldrei hef ég verið hræddur um þig - af því að ég þekki þig og það sem þú stendur fyrir. Sá sem kallar sig Bond virðist ekki þekkja þig en að mínu mati hljómar hann mjög eigingjarn. Hann gefur í skyn að þú sért eigingjörn og einnig virðist hann vera að skipa þér að halda þér á þínum stað. Engri manneskju hef ég kynnst - og held að margir séu mér sammála - sem er eins óeigingjörn og lítið fyrir að vera í sviðsljósinu eins og þú. Hitt er svo annað mál að þú hefur opnað hug og hjarta ansi margra í heiminum elsku vinkona. Vonandi heldur þú alltaf áfram að vera þú sjálf og vonandi vinnst mér tími til að hitta þig þegar ég kem næst suður.
Knús og koss til þín mín trausta vinkona til tuttugu ára

Palli B

10.8.2007 kl. 21:18

Sólrún

Það getur verið að þú sért stundum eina manneskjan í heiminum,en þú ert líka eftil vill allur heimurinn fyrir eina Jóhönnu. Gefðu það sem þú getur,með því sem þú hefur,þar sem þú ert

Bond

9.8.2007 kl. 15:58

Þú þekkir mig ekki, en ég hef fylgst með síðunni þinni og haft gott af að lesa bloggið þitt. Það hefur hjálpað mér mikið á mínum batavegi. Gangi þér allt í haginn og vertu dugleg að blogga.
Kveðja,
Steingerður

20.7.2007 kl. 16:11

Frábærar myndir

Gaman að sjá myndirnar úr fríinu, þetta leit allt saman rosalega vel út! :)

Kær kveðja,

Hrefna

http://www.hrefna.com

29.6.2007 kl. 11:20

Bata og stuðningskveðjur

Elsku Ásdís
Er með hugann hjá ykkur, dóttur þinni, tengdasyni og fjölskyldu. Samúðarkveðjur vegna litla drengsins sem nú er í ljósinu hjá Guði. Guð mun líka vaka yfir bróður hans, veita honum styrk og kraft svo hann styrkist og dafni vel og að allt fari á besta veg.

Kristín G

22.6.2007 kl. 14:53

Til hamingju með daginn:)

Mikið var gaman að hitta þig loksins. Ég þekki enga konu nema þig sem hefur höndlað það með jafnaðargeði að þyngjast um 30 kg á nokkrum mánuðum vegna skjaldkirtilsóvirkni og lyfjaaukaverkana. Þú ferð ekki í lýtaaðgerðir vegna gamalla sára, líkamsrækt eða eyðir í snyrtivörur. Þú ert bara náttúruleg og styrkur þinn liggur í fallegri og sterkri persónugerð. Takk fyrir allt....

Silla Guðm.

21.6.2007 kl. 0:59

afmæliskveðja

Sæl Ásdís mín.

Hjartans óskir í tilefni 50 ára afmælisins.
Alltaf ertu jafn glæsileg og falleg.
Takk fyrir allt.

Bestur kveðjur.

Gunnhildur og fjölskylda.

gunnhildur hreinsdottir

20.6.2007 kl. 23:59

Hamingjuóskir

með 50 ára afmælið elsku Ásdís. Takk fyrir ógleymanlegar minningar á efstu hæðinni í Klúbbnum þar sem við nánast bjuggum öll fyrir 25 árum. Eða allar stundirnar á Borginni og á Óðali, alltaf gaman að skemmta sér með þér og ævintýrin sem fylgdu, grín, gaman og hlegið. Áfram stelpan okkar kæra.

Beta og Maggi

20.6.2007 kl. 20:24

Til hamingju með afmælið

Ásdís mín og eigðu góðan dag. Haha þú getur nefnilega skrifað bókina -Ein á verði- eða -Alltaf á vaktinni - þetta sagðir þú nú sjálf einu sinni hehe. Þú hefur húmor fyrir sjálfri þér, fljót að hugsa og enn fljótari að framkvæma. Til lukku skvísa.

Ragna

20.6.2007 kl. 20:04

jæja, jæja dagurinn kominn, einu sinni hélt maður að á þessum aldri yrði drapplitaða heyrnatækið still á hæsta, vörtueyðirinn mest notaða kremið í hillunni, stuðningssokkabuxur í öllum litum í skúffunum,og rafmagsnupphitað bekken undir rúminu, nei nei, þetta á allt að bíða í 30 ár í það...en eins og ég hef svo oft sagt áður, þú ert flottasta og gáfaðasta vinkonan mín, og ég vona að dagurinn þinn hafi verið frábær og allir dagar sem eftir koma verði enn betri. Innilega til hamingju með daginn Ásdís mín,takk fyrir allt í gegnum svo ótrúlega mörg ár. Ástarkveðja Hafdís

Hafdís

20.6.2007 kl. 18:57

Heill þér 50 ára

Hver er uppskriftin að líta svona unglega út? Ásdís mín þú ert tvínefbrotinn, marg-saumuð eftir áverka í andliti, hálsi og víðar. Ég held að uppskriftin sé að þú ert jafnfalleg að utan sem innan. Tek undir orð Páls B að þú gefur allstaðar af þér, ekki bara með eyra, orðum og öxina tilbúna:) Heldur sviptir þú líka upp sjúkrahústjöldum á milli rúma ef sjúkl. á stofunni þinni andar ekki venjulega, öskrar á hjálp, ein kona á líf sitt þér að þakka. Svo áttu líka lyf við öllum kvillum sem þú gefur eins og öll húsgögnin þín. Það er gæfa að hafa kynnst þér. "Einhv." sagði við þig að þín biðu heilu búslóðaraðirnar eftir þér á Himnaríki:):):) Til hamingju með daginn.

Þín Kristín G

20.6.2007 kl. 15:27

Vinar og afmæliskveðja

Hjartanlega til hamingju með daginn Dísa mín.

Gunnsi B

20.6.2007 kl. 14:16

Væna mín

Mér er mjög illa við svona gestabækur og tölvur þar sem að allir geta lesið allt. En þú svarar mér bara svo sjaldan þegar ég hringi í þig og þarf að tala við þig og svo veit ég að þú átt afmæli í dag og vildi segja við þig til hamingju. Ég var nú að vona að þú mundir bjóða mér að koma með þér og eyða þessum degi með þér í Bláa lóninu eða á einhverjum veitingastað en það gerðist ekki. Vona bara að þú bjóðir mér með þér eitthvað sem fyrst. Kveð að sinni

SKH

20.6.2007 kl. 14:02

Splass-splúss, þar kom að því, skollin á þig árin 50.

Elsku Ásdís mín.
Mínar innilegustu hamingjuóskir með afmælisdaginn.
Við vorum nú búnar að ræða um það hér á árum áður að á þessum tímamótum yrðum við örugglega komnar plíserað pils og blússu eða blómakjól og með barðastórann hatt, allavega mokkasíur með gullspennu og dagurinn myndi byrja á eins og einu Sherry-staupi. Ekki höfum við nú verið nákvæmar í útreikningi þarna - þetta er eitthvað gífurlega fjarlægt í dag og held ég að við verðum að fresta þessu um allavega ein 15-20 ár. Við gætum nú reyndar byrjað á að fjárfesta í einni Sherryflösku, svona til að venja okkur við.
Bestu kveðjur til þín og þinna

Hanna Eyv.

20.6.2007 kl. 12:37

Til hamingju með daginn.

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Ásdís, hún á afmæli í dag.

Kveðja frá Óla

Ólafur Ægir Jökulsson

20.6.2007 kl. 12:26

Móðir, kona, meyja - fimmtug og fallegust.

Elsku Dísa mín.
Bak við fjöllin sjö hugsa ég til þín í dag sem og svo marga aðra daga. Ég óska þér innilega til hamingju með þennan áfanga í lífinu, orðin fimmtug þó ótrúlegt sé. En við eldumst víst öll. Eitt hefur þú þó umfram svo marga aðra og sem mun fylgja þér alla þína jarðnesku daga og það er að þú ert fegurst allra kvenna, bæði að utan og að innan. Traustari og tryggari vin, vinkonu, en þig er ekki hægt að finna. Þú ert alltaf til staðar með öxl og eyra og tilbúin að miðla úr þínum viskubrunni og gefa ráð og leiðbeiningar. Því miður eru ekki margir sem hafa gert það sama fyrir þig, enda held ég að fólk gleymi stundum að hugsa út í hvernig þín eigin lífsganga hefur verið því að þú hefur aldrei verið þessi kvartandi og kveinandi einstæða móðir, heldur vaðið áfram af miklum dugnaði og þrautseigju. Þú ert og verður mín hversdagshetja og þig sæmi ég minni fálkaorðu.
Hafðu það ætíð sem best elsku vinkona, þú veist að mér þykir vænt um þig.
Og mundu: Grænn varstu dalur.....
Faðmlag og koss frá mér til þín

Palli B

20.6.2007 kl. 11:15

50 ára....passar ekki!

Ég veit að þú átt afmæli í dag og óska þér til hamingju með það en ég trúi ekki mömmu að þú sért 50 ára.
Kveðja, Eyi

Eyvindur Árni

20.6.2007 kl. 9:33

Til hamingju með daginn

Innilegar hamingjuóskir með daginn elsku Ásdís. Kærar þakkir fyrir allar okkar góðu stundir saman

Lifðu í lukku en ekki í krukku.

Jóhanna og Ása, og frá Danmörku eru þér sendar kærar kveðjur frá Jóu og Dúa,Úlfari Möggu og Sylvíu og úr Breiðholtinu frá Arnari.


Jóhanna

www.123.is/alfarun

20.6.2007 kl. 8:07

Til hamingju með 50 árin

kæra Ásdís og njóttu dagsins. Bara 45 ár síðan við kynntustum í sandkassanum á Freyjugöturóló :):) og still going strong :)

Auður

17.6.2007 kl. 9:23

Takk

Takk fyrir að skoða síðuna mína :)
Pabbi og Mamma biðja rosa vel að heilsa :)

Mikael Jafet

http://www.123.is/mikael/

4.6.2007 kl. 17:30

Hvar er gönguhópurinn?

Já, Ásdís, ég er búin að hanga tvisvar úti í Gróttu tilbúin í göngu, enginn þú, bara túristar og fjölskyldufólk :) Gaman að lesa bloggið, blogga meira og takk fyrir kaffið :)

Auður

4.6.2007 kl. 13:05

Grótta

Veit nú ekki hvað er með Ásdísi og Gróttu. ;)

Jóhanna

5.5.2007 kl. 20:13

hahaha Grótta

Var að skoða myndirnar og þú hefur löngum skemmt mér kæra vinkona. Nú veit 'eg hvar ég get gengið að þér á laugardögum úti í Gróttu! Þarf að komast í þennan einhleypingahóp þinn. Ef ég þekki þig rétt heitir hann kvótalausir og einhleypir eða giftingaog sambúðarofnæmishópurinn eða sjóaðar konur og skaðbrenndir menn hehehe sjáumst og þú gerir þetta með stæl eins og annað.

Auður

17.4.2007 kl. 9:58

Sakna þín Dísa

Það er erfitt að kveðja þig, mundu að vera dugleg að senda okkur e-mail, eða blogga hér. Þú ferð með okkur í huga og mundu Dísa mín að þú ert alltaf velkomin til okkar. Eini gesturinn sem Maggi sagði að þyrfti ekki að hringja á undan sér. Okkur þætti gaman að sýna þér Köben, veit þó að þú þekkir Istegade og Kristjaníu, við sýnum þér allt hitt :) Mín kæra, gangi þér vel á spítalanum við sendum þér bata- og saknaðarkveðjur og plís plís vertu duglega að láta heyra frá þér, veit það þýðir lítið að hringja en you are the best:)

Kolla

8.4.2007 kl. 14:02

Gleðilega páska

Óskar þér Ásdís og fjolskyldu þinni gleðilega páska.

kveðja frá Danmörku

Jóhanna, Dúi og Jóhanna I

Jóhanna

www.123.is/alfarun

23.3.2007 kl. 7:48

Elsku Ásdís til hamingju!!
Frábærar fréttir alltaf gaman þegar fjölgar í fjölskyldum.
Erum með ykkur í huganum hérna í neðra.
Þú lofar að kenna þeim EKKI að keyra!!!!
Bestu kveðjur frá Nýjasjálandi.
Bróðir þinn er að hlusta á Bubba diskinn sem er hans NO 1 þessa daganna. Annars allir hressir Addi fær spangir 11 april
það verða dregnar úr honum 4 tennur á þriðjudag SVO það sé pláss fyrir hinar.
Sendu mér e-mail.
Íslendingabók er og verður alltaf spennandi lesning fann eina systur mína þar vona að það séu ekki mikið fleiri þar.
Bestu kveðjur til allra frá okkur í neðra.

Liney

22.3.2007 kl. 23:03

Til hamingju!!!!!!!!

Elsku Ásdís til hamingju. Þinn eigin leggur er að verða stór. Þetta eru ótrúlega spennandi fréttir.
Varðandi bloggið umfrænkuna, þá varð mikil rekistefna í minni fjöldyldu þegar íslendingabók kom fyrst,frænka mín var að vinna við uppsetninguna og þau voru með færslu um að mamma mín hefði átt annað barn, margar símhringingar og allt það en það var þá línuvilla og ég átti ekki systir þar.
Bestu kveðjur til Hrefnu og aftur til lukku kv Solla

Solla

19.3.2007 kl. 15:37

en fékkst aftur veskið Ausa

:):):) já Auður missti málið við Nína misstum næstum hárið og þú náðir veskinu aftur, kveiktir í sígó og sagðir sallaróleg, kíkum á fleiri staði, eins og ekkert hefði skeð. Áfram Dísa og góða heilsu. Þín Kolla

Kolla

17.3.2007 kl. 13:09

hæ sterka vinkona

Ég er með hugan hjá ykkur dísa skvísa. Andlegur styrkur þinn hefur alltaf unnið með þér, raðað saman erfiðum brotum sem fáir gætu. Því hefurðu staðið mótlæti, áföll og veikindi. Sonur þinn mun verða sterkari og nýta þetta slys sem lærdóm því þú ert fyrirmyndin. Eins og þegar þú sagðir við mig ALDREI AÐ GEFAST UPP (svo pakkaðir þú manninum saman sem tók veskið mitt með orðaflaumi og snöggum handahreyfingum, og varst snögg að hehehe og ég missti málið :-)

auður

10.3.2007 kl. 14:56

Slysin gera ekki boð á undan sér.

Elsku Ásdís það er ekki þér eða Pétri að kenna að hann lenti í þessari lífsreynslu og gott að ekki fór verr. Í mínum huga ert þú besta mamman sem hefur alltaf haft börnin í forgangi oft við erfiðar aðstæður. Aldrei hefur þú reynt að losna við þau, komið þeim fyrir eins og margir foreldrar sem hafa búið við betri kjör og stuðning.

Börnin þín eru ekki eingetin, þau eiga föðurmynd sem hefur aldrei hjálpað t.d. í þínum sjúkrahúslegum, eða verið til staðar og því síður stutt drengina í einu eða neinu. Hann má skammast sín. Hugsaðu vel um heilsuna þína, það gerir það enginn fyrir þig. Gæfuósk til þín og þinna. Ég get þó ekki annað en brosað þegar ég les þessar bílasögur hér í gestabókinni. Bróðir þinn hefur verið orðinn sjóaður í bíltúrum með ykkur systrum!

Kristín G

10.3.2007 kl. 10:51

Beygluð bílskúrshurð og brött Breiðholtsbrekka

hæ, hæ,
Mér sýnist að nú sé komið að bílasögum og hrakfallasögum fjölskyldumeðlima. Mér er t.d. afar minnistæður fyrsti bíltúr minn með Ásdísi systur. Við stóðum þarna við þvotta á rauðri Simcu og vildum þannig leggja okkar lóð á vogarskálarnar í hús- og heimilisverkum. Ásdís systir var ekki beinlínis að góna ofaní bónfötuna, heldur þess meira á bíllyklana sem stóðu svona glitrandi í skránni. Hún sem sagt bauð mér í bíltúr, ríflega tíu ára gömul, og settist ég beltislaus í framsætið. Það næsta sem ég vissi var að bíllinn þeyttist í gegnum bílskúrshurðina og við sátum þarna stöllurnar nokkuð hissa, þar til ég áttaði mig á þessu og klagði kellu. Okkar (hennar) refsing var að hafa beyglaða bílskúrshurð alla okkar bernsku fyrir framan augun á okkur og sem prýði hverfisins. Annað atvik var t.d. þegar ég var (þó) nýkomin með bílpróf á leið í veislu til Ásdísar í Hrafnhólum. Að góðum fjölskyldusið bauð ég Gumma bróður að fljóta með og vildi líka leika listir mínar sem bílstjóri. Sóttist okkur ferðin eitthvað hægt að var Guðmundur eitthvað að skipta sér af keyrslulaginu. Ég lét engan bilbug á mér finna heldur stýrði af mikilum myndarbrag en fór ekki hratt yfir. Málin versnuðu til mikilla muna í Breiðholtsbrekkunni þar sem við komust vart úr sporunum hvað sem ég gaf mikið í, og héldum við bílastrollu fyrir aftan okkur í sótmekki nokkrum. Var Guðmundur farinn að skammast sín og faldi sig í bílnum en þegar reykjalykt gaus upp í bílnum þá tók hann í handbremsuna og frelsaði fákinn. Brunuðu þá margir bílar fram úr okkur úandi og púandi og Guðmundur sór og sárt við lagði að fara aldrei með mér aftur í bíl. Sem ég held að hann hafi nokkurn veginn staðið við. Læt ég nú sögum af systrum og samskiptum þeirra við tryllitæki og tæknibúnað lokið í bili.
Kveðja,
Hulda

Hulda

7.3.2007 kl. 17:49

Guðmundur bróðir og co

...ekki amarlegt ef hægt væri að kaupa hamingjuna með hvítri rúllugardínu :)!!

Einu sinni stal ég bílnum hennar mömmu, próflaus og bauð þér í bíltúr um húnverska sveit. Ekki vorum við í beltum og þegar við mættum bílum fór ég út í vegakantinn og við breiddum landakortin fyrir framrúðuna. Þóttumst vera túristar, ég vildi ekki að fólk sem mætti okkur hugsaði "þarna eru börn í bíltúr."

Allt gekk vel þar til 90° beygjan kom hjá Snærings-eða Rútsstöðum. Við hentumst út í móa og ég fraus á bensíngjöfinni, tætti upp þúfur, þú líka hoppandi og skoppandi í framsætinu. Þegar við stefndum þvert á veginn sagðir þú "BREMSAÐU." Það bjargaði lífi okkar líklega, að ég hlustaði á þig litla bróðir og snar-negldi niður, með nefið á bílnum hálfum metra frá djúpum skurði. Sem við hefðum annars stungist ofan í með bílnum.

Hér með þakka ég þér fyrir skarpa hugsun og rétta og fumlausa ákvörðun (ekki verið stíll ykkar bræðra minna að garga og góla, við systurnar átt það svið:) annars hefði þessi bílferð getað endað illa.

Bestu kveðjur til ykkar allra og hvar eru myndirnar frá Nýja-Sjálandi?- Typisk-systir, fyrst takk fyrir lífgjöfina og svo kröfur um myndir frá NZ :)

Ásdís systir

7.3.2007 kl. 8:37

Gott að vit að Pétur sé að mestu óskrámaður eftir þetta, hafið það sem best.
Hamingjan er kanski hangir kanski ekki í gluggatjöldunum!
Saknaða kveðjur frá NZ

Gummi og co NZ

21.2.2007 kl. 14:21

Ásdís X 70

Kvitt og þakka fyrir mig, líka þegar aðrir létu sig hverfa, þóttust ekki heyra eða sjá. Þá hugsaðir þú hratt, framkvæmdir með skarpri hugsun og líkamlegum styrk hjálp sem ég þakka þér.

Því sagði ég fyrir ári að það ætti að klóna þig 70 sinnum og setja strax inn á spítalana, í kvennaathvarfið, kvennafangelsið, í heimsóknarþjónustu fyrir fólk í nauð og einmannaleika. Les bloggið þitt og það væri gott ef þú bloggaðir um meðvirkni. Ert þú ekki fædd inn í Framsóknarflokkinn langt aftur í ættir fyrir norðan ?

Silla

12.2.2007 kl. 22:02

Í framboð með þig...

Kíki oft inn á síðuna þína, úps og bara mynd af mér, fyndið því ég er alltaf með þig í hausnum á mér, af þvi við ætlum að hittast,reyndar ekki á Mokka heldur á öðrum gömlum stað. Bjalla í þig...reyndi áðan en það svaraði ekki, Hvenær ætlar þú að skella þér í pólitíkina, það myndi nást hreinn meirihluti ef þú færir fram, mikið assgoti myndir þú sóma þér vel við hliðina á Ingibjörgu Sólrúnu, hvernig líst þér á.....kveðja úr Glæsibænum.

hafdis

28.1.2007 kl. 16:01

Velkomin til Himnaríkis

þér munuð starfa hér við fiðurhreinsun sagði rauðhærði engilinn í næsta rúmi. Ég opnaði augun slöpp eftir svæfinguna. Engill með umbúðir á hálsi og hvítum fötum merktum ríkisspítölum. Passaði ekki og ég glaðvaknaði. Síðan hef ég hlegið með þér og var að lesa bloggið. Ég þekki einstæða móðir sem kallar ekki allt ömmu sína og það ert þú. Takk fyrir mig engill.

Kristín

27.1.2007 kl. 0:23

dísa skvísa

Þú ert ekki að mála bæinn rauðan eða íbúðina, þú ert búin að sjá allar myndir í sjónvarpinu og lesa allar bækurnar og hvernig væri þá að blogga?? Annars góða nótt mín kæra og góða helgi :)

Auður

24.1.2007 kl. 20:39

Ég er flutt

Ha,ha, var að lesa línurnar frá þér Hrefna mín, og hló og hló, ekki tekið eftir þessu fagra smáþorpi, sem allt í einu er komið á forsíðuna mína. Ég vil gjarnan flytja í þetta jólakorta-þorp, smá spurning hvar það er staðsett í veröldinni ?:)

Ég hélt að Finnur hefði verið svo leiður á hinni myndinni og skipt um mynd ? Ha, er það ekki ? Eða fæ ég aldrei að vita hver vill að ég flytji í jólakortaþorpið ? Heyrumst um helgina :)

mamma

24.1.2007 kl. 1:01

Smá fikt...

Hæ,
Gafst upp á haustinu og setti inn vetur... :)

Bíðum eftir bloggi og reynum að hringja um helgina! :)

Hrefna

http://www.hrefna.com

18.1.2007 kl. 13:52

Blessuuððð Ásdís

Takk fyrir spjallið og ég er full af orku eftir allan hláturinn:) láttu mig vita ef þú ætlar að strauja miðbæinn um helgina því ég er tilbúin frá 20-08hehehe

Kristín G

2.1.2007 kl. 17:19

Gleðilegt ár.

Guð gefi þér og börnunum þínum gæfuríkt ár. Þakka liðið, allt spjallið, kaffið og trúna sem þú hefur á mér. S.l. ár skelltir þú mér oft í raunveruleikann. Vona að þess þurfi ekki 2007 það sem ég var oft pisst út í þig Dísa mín :) en nú er ég að uppskera. Ég er enn meira pisst að þú svarar aldrei símunum.

Byrjaðu nú árið með að svara heima og í gemsann, komdu talhólfunum aftur í samband og ég skal EKKI tala inn á þau nótt sem daghehehe:) Það eru til myndavéladyrasímar svo þú þurfir ekki að kíkja fyrst út um gluggann. Silla kom með pakka til þín og fraus föst á tröppunum, en þá var mín bara á Kanarí :) Heyrum í þér á morgunn.
Þín Ragna

Ragna

31.12.2006 kl. 20:46

you so fucking special...

Kæra Ásdís og fjölskylda. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir liðnu árin. 25 ár síðan við hittumst fyrst. Náttúrulega fallegasta stelpan sem við höfðum séð, með brostin augu og bros sem lýsti upp tilveru okkar. Gaman að hitta þig í dag, enn ertu sama Ásdís, sjálfstæða töffarastelpan nú með glampa í augum og sama brosið. Sjáumst á nýja árinu.

Beta og Maggi

22.12.2006 kl. 14:02

...

Gleðileg Jól & farsælt komandi ár ;D;*

sólrún

16.12.2006 kl. 23:35

Ég aftur

Var að lesa bloggið þitt. Þú talar um bið ég bíð eftir ljóðabókinni og æfisögunni þinni í bíó. Dísa mín þú verður aldrei kerling einu sinni töff alltaf töffari. Láttu þér batna og þú veist alltaf heitt á könnunni og öskubakki á borðinu fyrir þig.
Nína

Nína

12.12.2006 kl. 22:23

blogga,blogga áfram Dísa

Höfum saknað þín kæra vinkona. Jólin eru að koma og þú oft áður hrist af þér lungnabólgu--plís,,fáður betri heilsu og góð jól.
Þínar vinkonur Kolla og Nína og mundu að blogga og þú veist hvaðan!! og þá segir þú að þú sért upptekin á nornatímum :-)

Kolla og Nína

4.12.2006 kl. 23:09

Walk on the wild side

Frábært að hitta þig á djamminu. Takk fyrir hláturinn og heiðarleika þinn. 10 ár liðinn og eins og við hefðum aldrei týnt þér. Mundu að hugsa vel um heilsuna verðum í bandi.

Jói og Diddi

28.11.2006 kl. 15:51

Dísa skvísa lísa/ása dísa :):)

Well..loksins sjáum við síðuna þína-gaman-gaman. Sé á neðangreindu að það eru fleiri sem skipta um nr.en þú:) Er þetta ekki prinsinn þinn sem má ekki orði á halla:) þú mátt ma.eiga að þú verð þitt og þína út í óendanlegt og líka alla sem eiga það ekki skilið:) Þú tekur pásu og enginn skilur neitt og svo alltaf gömlu nr. aftur fljótt. Hvar eru talhólfin? svo við getum þó talað inn á þau, eða ráða símadömu heima sem gætu eldað, skúrað og bakað ofaní okkur í eldhúsumræðum og spádómum:).) Sjáumst sem fyrst:)

Ragna og Silla

20.11.2006 kl. 14:38

..:)

hæhæ. ég er búin að hitta pabba ,,en hann er komin með nýtt numer ;) en heyri í þér ;:) bæj

sólrun

17.11.2006 kl. 21:53

Gamla mín:)

Áhugaverð síða eins og allt sem við gerðum, dansað út í eitt, áfallahjálp á klósettum, 50 skrefa spretthlaup við Tjörnina, pása, vaðið upp að hnjám, pása og coce með sílasögu. Hláturskast á Austurvelli og grátið og sparkað í tunnur í Slippnum, flissað og klifrað í ljósastaurum og ÞÚ sagðir að hversdagslífið væri skemmtilegast:):):)

Auður

14.11.2006 kl. 15:00

Góð fyrirmynd:)

og uppskerð eftir því gaman að skoða myndirnar, börnin og barnabarnið, vá myndarleg:) Ásdís mín þú hefur fengið meiri skammt af erfiðleikum en nokkrum er hollt og fáir standa en þú stendur allt og berð til barnanna lúkkið:):) greind að tjá sig og skrifa, listhneigð, lærdómshæfileika, dugnað, ósérhlífni, þú alltaf til staðar og húmor:) Gleymi ekki þegar þú fjarstýrðir heimilinu í gsm á St. Jósefsspítala í sumar. Varst veik en leist út einsog í sumarfíi, og eytt þeim nokkrum á spítölum. Talaðir eins og þú værir á 5 stjörnu hóteli, brún og glettin og beiðst eftir smörrebröd hahaha.Þakka þér fyrir þolinmæðina og kenna mér að sjá ljósið eins og Pollyanna að þetta gæti verið verra:) Læt þig vita þegar heimasíðan mín er tilbúin og læt Rögnu vita um þína.
Kær-kertakv. Kristín G.

Kristín G

13.11.2006 kl. 15:21

Ofurdísa nr. 1

:) assi var gaman að hitta þig loksins:) og það í apotekihehe. Alltaf ertu fegurst, fyndnust, greindust og sama hvað lagt er á þig, alltaf sömu persónutöfrarnir. Takk fyrir allt í 30 ár fyrir mig og mína. Pant sms þegar þú ferð og tekur 101 í 10 skrefum næst-hehe allt verður svo gaman-allir í tvöfalda röð í Lækjargötu, eftir bendingu þinni. Ég tib. í 8 tíma törn og þú með ferðatöskuna hehe.
Miss you always - Þín Sigga

Sigga

11.11.2006 kl. 20:03

Takk Ásdís mín

Kvitt fyrir mig var búinn að gleyma hvað það er gaman að hlægja með þér. Takk fyrir kaffið og stuðninginn alltaf þegar ég átti sem mest erfitt. Mér þykir leitt ap hafa ekki hjálpað þér í veikindum ég er bara ekki eins sterkur eins og þú. Goðan bata og hlakka til að hlægja næst með þér, láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig.

Steini

6.11.2006 kl. 22:44

hæhæ (:

já það er vonandi satt, en ef þú heyrir í honum viltu þá láta mig vita sem fyst, takk æðislega fyrir að láta mig vita og svona ;) og ef þú heyrir í honum segðu þá að ég hafi verið að reyna ná í hann og vil hittann,, og fara á runtinn eins og við gerðum ekki bara peninga, þótt hann sagðist ætla að gefa mer rosa mikla peninga í fermingargjof þá stóð hann ekki við það ;S og mig sárnaði mætti ekki í fermingu mina og eikkað svona ;S þúst ég vil bara heyra í honum og tjekka þúst hvernig honum gengur og svona,, en takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með haha :)

en heyrumst fljótlega bæjo :)

og vona til að sjá þig í bráð eða kannsk fljótlega að hitta þig þegar ég er með pabba (:

sólrún heiðarsd.

lovers.bloggar.is

6.11.2006 kl. 17:33

;)

hæhæ :) aftur ég :D

en já hehe msn/popptivi kynslóðin haha :) það er sko rétt (:

en vildi bara spurja þig að einu veistu ekkað um pabba ?
hann svarar ekki simanum sinum ;S ?
vona að fá svar
heyrum fljótlega bæjó (:

sólrun heiðars ;)

lovers.bloggar.is

31.10.2006 kl. 0:39

hæhæ

hæhæ ásdís :)

takk fyrir þetta í gestabókinn hjá mér hehe :)
hehe já og soldið gamlar myndir af mér og lindu :) hehe
en glæsileg síða
en við heyrumst later :)

Sólrún Heiðarsdóttir

29.10.2006 kl. 22:44

Sæl og blessuð kæra vinkona

Mikið var nú gott að heyra í þér Dísa mín en það er orðið löngu tímabært að við hittumst í pollagalla og förum ótroðnar sloðir hehe. Þú ert ótrúleg manneskja svo dugleg og hlý alltaf tilbuin fyrir aðra þó þú hafir ekki neitt fyrir þig. Er að fara út í viku og verð sko í bandi þegar ég kem heim er auðvitað aðfara í aðgerð 22 þessa sem þú veist you know sama og þú ert að spá í hehe. Hlakka til að heyra í þér og sjá.
Kveðja Áslaug

aslaug

18.10.2006 kl. 16:32

Gleði-gleði - bloggið að byrja

Elsku Ásdís mín.
Ekki gleyma því að þú hefur í gegnum tíðina ætið verið til staðar fyrir okkur vini þína, bæði í sorg og gleði, og hvernig sem staðið hefur á hjá þér á lífsgöngunni.

Hanna

18.10.2006 kl. 14:47

Kvitt

Þetta er ekkert smá magn af myndum. Rosalega gaman að skoða þær :)

Kata

17.10.2006 kl. 13:45

Mér þykir vænt um þig Ásdís mín!

Gaman að skoða myndirnar - fjölbreytt fólk og greinilega allir vinir í skóginum þínum Dísa mín.

Palli B

14.10.2006 kl. 21:50

Ein Asdis

og eg tel 6 af tinum fyrrverandi a heimasidunni. :-) Gaman ad skoda myndirnar og bid eftir bloggi.

Einn myndalaus

29.8.2006 kl. 19:15

Kvitta fyrir mig;)

steingleymdi að kvitta fyrir komuna um daginn. frabært að fá myndir af ykkur. er að vinna í að setja upp eina svona fyrir mig líka. Læt þg vita um leið og hún er tilbúin;)

Helga H

19.8.2006 kl. 21:14

hahah fint

oddi

18.8.2006 kl. 8:58

blogg

hAE GAMAN AD SJA MYNDIRNAR EN BIDUM SPENNT EFTIR BLOGGI

liney

17.8.2006 kl. 18:40

Blogg blogg blogg

Tek undir það að ÁSDÍS á að blogga, það bíða allir eftir bloggi.

Jóhanna

www.is/alfarun

17.8.2006 kl. 12:07

Flott!

Flottar myndir Ásdís! Strákarnir þínir eru þvílíkt myndarlegir!

Ég tek undir með hinum sem hafa skrifað, það væri ofsalega gaman að lesa eftir þig blogg :)

Bestu kveðjur,
Gyða

Gyða

17.8.2006 kl. 11:03

langflottust!

Kemur oft á óvart, fín heimasíða - en yrði mun betri ef þú skrifaðir blogg um lífið, tilveruna, fólk og sögur, jafnvel kvikmyndahandrit. Veit að þú ert flottust.

sjöfn

www.egal.is

12.8.2006 kl. 19:16

flott........

en......ég vil blogg, þar eru hæfileikarnir, og endilega taktu upp fjaðurpennann og leyfðu okkur að njóta þinnar frábæru ritfærni...blogga blogga blogga.....

8villt

11.8.2006 kl. 19:39

Þú tendur þig vel en það er ein
móðgun og það er þegar ég sit í
stólnum heima hjá þér og er að
éta KEX.

Sæunn Birta

11.8.2006 kl. 19:29

Flott, gott og gaman....

Stendur þig vel - eins og alltaf

Hanna Eyvindsdóttir

10.8.2006 kl. 19:59

Áram Ásdís

Áfram Dísa

Jóhanna

www.123.is/alfarun

Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 11
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 228559
Samtals gestir: 49252
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 02:03:56

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Ásdís Sólrún Arnljótsdóttir

Farsími:

862-2241

Afmælisdagur:

f. 20.júní 1957

Heimilisfang:

107 Reykjavík, Iceland.

Heimasími:

551-2241

Tenglar