Hvernig var saumaklúbburinn í gær?
-Leiðinlegur. Það voru allir mættir, þannig að við höfðum ekkert til að tala um.
Það var haldið grímuball á Frönskum dögum og ein stúlkan kom klædd í ekkert nema kort af Íslandi.
Einhvern tíma kvöldsins var hún á tali við ungan mann þegar hún sló hann allt í einu utan undir og fór.
Hvað gerðist eiginlega, spurði vinur hans.
Við vorum að tala saman og hún spurði mig hvaðan ég væri og ég benti á Vestmannaeyjar.
Eiginmaðurinn
kom aftan að konunni þegar hún var að bogra eitthvað og sagði við hana,
djöfull ertu orðin breið kelling.. .. þú ert að verða eins og gott
gasgrill að breidd.. .. svo þegar komið var upp í rúm um kvöldið gerði
gamli að sjálfsögðu tilkall og hvíslaði "eigum við ekki að taka á því
gamla ?".. .. þá heyrðist í henni ertu eitthvað vangefinn heldur þú
virkilega að ég fari að hita upp heilt gasgrill fyrir eina litla pulsu
!!!!
Gamall
maður á níræðis aldri sat í afmælisboði innanum fullt af fólki,
skyndilega finnur hann fyrir sviða í öðru eyranu og þegar hann fer að
klóra sér í eyranu finnur hann fyrir einhverju, jú og viti menn hann
dregur eitthvað út úr því og þegar hann skoðar hvað þetta er þá sér hann
að þetta er stíll. Fólkið í boðinu starir furðu lostið á aðfarirnar.
Eftir smá umhugsun snýr sá gamli sér að fólkinu og segir :
"Jæja .. þá veit ég hvar heyrnatækið er .
Ljóska ein var sannfærð um að eiginmaðurinn héldi framhjá henni.
Til að fá staðfestingu á þessu sendi hún börnin þeirra þrjú í DNA prufu.
Og viti menn, hún hafði á réttu að standa,maðurinn hennar reyndist ekki eiga eitt einasta þeirra !!