02.03.2012 18:52

Litið yfir árið 2011 fram undir jól

Lélegasti bloggari ever - ég ætla að setja jólabréfið hér inn frekar en ekki neitt emoticon


Kæru vinir.

Af okkur er ýmislegt skemmtilegt að frétta.  Við keyptum hlut í íbúð á Patreksfirði með Lilju og Gunna.  Flestar frístundir sumarsins fóru í að gera íbúðina upp þar sem ekkert var heilt innandyra nema loftin og veggirnir en þó ágætlega heillegt að utan fyrir utan glugga og svalahurðir sem þurfti að skipta um vegna leka.  Ætluðum nú ekki að gera svona mikið en eitt leiddi af öðru eins og svo oft í svona endurbótum.  Nú er þetta orðin hin fallegasta íbúð á besta staðnum í bænum.  Við vorum líka ágætlega dugleg að klífa tinda í kringum Patró og skoða Vestfirðina.                                                                                       

Við hjónin skruppum til Köben í vor og heimsóttum bróður Sigga og fjölskyldu sem býr í Dalmose (ca kl.st. akstur frá Köben).  Alltaf jafn gott að koma til þeirra og Köben er notalegur staður, möndlurnar á Strikinu og kaldur með, nammi namm....                                                                                                 

Siggi er búinn að vera  mikið á sjó og fyrir vestan þetta árið.  Grásleppan brást eða þannig en tíminn á Patró nýttist í húsviðgerðir þegar ekki var sjóveður.  Í lok Nóvember fékk hann atvinnutilboð frá Jarðborunum þar sem hann hafði unnið  áður.  Hann ákvað að leggja land undir fót og koma aftur í hreiðrið okkar í Reykjavík.  Vitum ekkert hvert eða hvort hann verður sendur næst þar sem Jarðboranir eru að bora á Nýja Sjállandi, Dominic, Asoreyjum og fleiri stöðum, bæði á Íslandi og erlendis.                                                                                                                                                                                  

Ég (Dóra) er byrjuð ellefta árið hjá Íbúðalánasjóði og starfa þar enn sem ráðgjafi.  Alltaf í nógu að snúast þar.  Sumarið var yndislegt, tók auka mánuð í frí og var mikið á Patró en flakkaði líka um landið.  Í stúdentsveislur norður í land, Landsmót hestamanna á Vindheimamelum svo eitthvað sé nefnt.  Skaust líka til Minneapolis með systrum Sigga, Höllu og Baldvinu í haust sem  var hin skemmtilegasta ferð.  Margt og mikið að skoða í Mall of America 

Gísli er háskólanemi, á öðru ári í BS námi í vélaverkfræði og einnig eðlisfræði.  Honum gengur bara ljómandi vel í þessu og farinn að finna betur út hvað hann vill stefna á í náminu.  Hann tók sig til og flutti frá okkur til Kristjáns þar sem hann leigir og passar lítið hundskríli sem Kristjana á  á meðan bróðir hans er úti á sjó.

Kristján er núna einn af vélstjórunum á Gandi VE-171 frá Vestmannaeyjum og gerir það gott.  Hann hefur róið stíft síðan í vor og stoppað stutt við í landi.  Núna er hann kominn í langt og gott jólafrí sem er vel séð af Kristjönu sem veit ekkert skemmtilegra en að hafa pabba sinn hjá sér.   

Kristjana er orðin 10 ára, lífsglöð og dugleg stúlka, nemi í Vogaskóla.  Hún býr hjá pabba sínum en er hjá okkur ca annan hvern mánuð þegar hann er á sjó.       

Lilja er á þriðja ári í hjúkrun og er mjög ánægð með lífið og tilveruna.   Ekta hjúkka.  Hún vann á sjúkrahúsinu á Patreksfirði í sumar og var hinn ágætasti smiður í frístundum.  Hún vinnur á hjartadeildinni með náminu.  Gunni var fyrir vestan að vinna í sínu fyrirtæki þar til í haust og auðvitað notaði hann líka frístundirnar í húsviðgerðir.  Um þessar mundir er hann að vinna hjá fyrirtæki í Hafnarfirði, Vélaverkstæði Jóhanns Ólafs, til að auka réttindi sín í vélfræðinni.                                                                                

Mamma er flutt til Dalvíkur, nánar tiltekið á elliheimilið Dalbæ.  Hún er alltaf jafn hress og lífsglöð og það er oftar en ekki hlegið dátt í kringum hana þar sem húmorinn hennar hefur ekkert minnkað þó minnið sé farið að bresta töluvert.  Hún ætlar að veita okkur þá gleði að vera hjá okkur yfir jólahátíðina.

 

  • 1
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 9
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 42464
Samtals gestir: 11831
Tölur uppfærðar: 22.5.2012 03:59:06

Um okkur

Nafn:

Dóra og Siggi

Farsími:

8968297 og 8938297

MSN netfang:

sigdora@hotmail.com

Afmælisdagur:

30 apríl og 18 október

Heimilisfang:

Ljósheimar 4, 4.h.v., 104 Reykjavík

Heimasími:

4538297

Um:

Við erum pattaraleg hjón og ánægð með lífið......

Uppáhalds manneskjur:

Ættingjar og vinir okkar

Uppáhalds matur:

Fiskisúpa

Eftirminnilegast:

Brúðkaupsdagurinn okkar

Tenglar