Færslur: 2010 Desember27.12.2010 00:18Hér kemur jólabréfið í ár - hef ekki verið bloggari þetta árið ;)
Af okkur er allt gott að frétta í kreppunni sem við finnum nú ekki mikið fyrir nema hvað íbúðalán og verð á allri vöru hefur hækkað. Ekkert væl og vol á þessum bæ Siggi er búinn að vera á sjó þetta árið og gerir það gott. Hann byrjaði á að fara með tengdasyninum og bróður hans á grásleppu. En er núna á Sighvati Gk-57 frá Grindavík. Dóra er alltaf hjá Íbúðalánasjóði, starfar þar sem ráðgjafi. Þar er nóg að gera en hafa verið töluvert öðruvísi verkefni þetta árið og fyrirséð að áfram verði næg verkefni fyrir höndum. Gísli varð þrítugur á árinu og var mikil og skemmtileg veisla af því tilefni. Dóra varð fimmtug og valdi að heimsækja Patreksfjörð þá helgina þar sem Siggi réri á Grásleppu frá Brjánslæk með aðsetur hjá Báru tengdamömmu Lilju á Patreksfirði. Tvö ættarmót voru haldin þetta sumarið, annað í föðurætt Dóru, haldið á Hólum í júní og svo kom Gröndalsgengið saman á Steinssöðum í ágúst. Alltaf gaman að hitta ættingja sína. Við fjölskyldan fórum saman til Spánar seinni part sumars. Leigðum okkur hús og bíl og nutum hvors annars, sólarinnar og hitans sem var í hærri kantinum fyrir íslendinga eða um og yfir 40°C. Við vorum í 10 daga og flæktumst aðeins um hverfin í kring. Gísli var á sjó þar til í byrjun ágúst eða þar til við fórum til Spánar. Hann skellti sér svo í HÍ og stúderar vélaverkfræði þessa dagana og líkar vel. Kristján er á sjó á Gandi VE-171 frá Vestmannaeyjum. Hann og Bergný Heiða slitu samvistum á árinu. Kristjana býr hjá pabba sínum en er hjá okkur ca annan hvern mánuð þegar hann er á sjó. Hún er skemmtileg og glöð 9 ára stelpa sem var í samræmdum prófum í haust og brilleraði, sérstaklega í stærðfræðinni. Lilja er á öðru ári í hjúkrun og er mjög ánægð með lífið og tilveruna. Ekta hjúkka. Gunni stofnaði litla útgerð ásamt bróður sínum og móður. Hann hefur verið að vinna við útgerðina þetta árið. Útgerðin á þrjá báta sem gerðir eru út frá Patreksfirði.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Takk fyrir árið sem er að líða. Með bestu kveðju
Dóra, Siggi, Gísli, Kristján, Kristjana Sumarrós, Lilja, Gunnar Sean. Kveðju sendir mamma líka til allra. Skrifað af Dóru
Flettingar í dag: 0 Gestir í dag: 0 Flettingar í gær: 9 Gestir í gær: 5 Samtals flettingar: 42464 Samtals gestir: 11831 Tölur uppfærðar: 22.5.2012 03:59:06 |
Um okkur Nafn: Dóra og SiggiFarsími: 8968297 og 8938297Tölvupóstfang: dora.gisla@talnet.is siggi.sverris@talnet.isMSN netfang: sigdora@hotmail.comAfmælisdagur: 30 apríl og 18 októberHeimilisfang: Ljósheimar 4, 4.h.v., 104 ReykjavíkHeimasími: 4538297Önnur vefsíða: http://telenstar.com/mbl/rel.pl?merki1=2&merki2=7Um: Við erum pattaraleg hjón og ánægð með lífið......Uppáhalds manneskjur: Ættingjar og vinir okkarUppáhalds matur: FiskisúpaEftirminnilegast: Brúðkaupsdagurinn okkarTenglar
Eldra efni |