Vísur og gamanmál

Vísur

Úr karlhormónum kafnar hún
kolrugluð að vanda
sæðisfrumum safnar hún
senn mun´enni standa.

Elín, Óli Th.

Úr karlhormónum kafna hér
kolrugluð að vanda
Það hver einasti maður sér,
þið elskið þennan fjanda

Elín, Raggi.

Eitilhörð hún Elín er,
elskar að smyrja og bóna
engum það nú fram hjá fer
á Jón hún er að góna. 

Raggi, Kristján K.

Eitilhörð hún Elín er
elskar að smyrja og bóna
en karlarnir þeir klóra sér
í klofinu og góna.
Raggi, Óli Th.

Ekki leynast ummerkin
allveg dugar lyftarinn
er komast þurfti á kamarinn
í hvelli sjálfur forstjórinn.
Óli Th.


Ég læðist með veggjum.
Ég hef auga með öllum steggjum
við staðnum mig órar
kinnar ég saman klemmi.
Staðurinn er Skóar.
Gunnar Þór.

Haukur, Pétur, Halldór, Jens
halda sínar venjur
þegar þeir keyra M.Bens
þora engar frenjur.

Tölvuskrattinn vonlaus er,
á það til að frjósa
Jens þú verður hana að strjúka
þar til úr henni fer að rjúka.

Björgvin sprautar sparslar þvær
sparar eigi verkin
en auðvitað hann aldrei nær
að afmá verksumverkin.
Eftir þá sem út um land aka líkt og glópar
bifreiðanna bágt ástand
á Björgvins vinnu hrópar.
Það er ekki þrauta laust
þessu jobbi að sinna
vetur sumar vor og haust
að vinna upp syndir hinna.

Haukur og Pétur og Halldór og Jens
halda í sínar venjur
er veginn þeir mjakast í M.Bens
er mikið um stunur og grenjur.

Sba er staðurinn
svalir menn þar hanga
reykingabann ríður þar inn
rembast við að lánga
hvernig væri nú að fá sér tvær
og láta verkin gánga.

Björgvin sprautar,sparslar þvær
sparar eigi verkin
með í hendi tvær
skoðar á þeim merkin.
Sápar bæði typpi og tær
svo hann losni við verkin.
Brosir ljúfur bæði og hlær
svo ber í heilabörkinn.


Gamanmál

Gamall maður bjó einn í Þykkvabænum
Hann langaði til þess að stinga upp kartöflugarðinn sinn,
en það var mikil erfiðisvinna.

 Bubbi sonur hans, var sá eini sem hann hafði getað fengið til að hjálpa
 sér.
 En Bubbi var lokaður inni á Hrauninu. 
 Gamli skrifaði honum bréf og sagði honum frá vandræðum sínum:
 
 Elsku Bubbi minn,

Æ, mér líður hálf-illa, því það lítur út fyrir að ég geti
ekki sett neinar kartöflur niður í garðinn þetta árið.
Ég er bara að verða of gamall til þess að vera að stinga upp beðin.
Ef þú værir hérna, ætti ég ekki í neinum vandræðum,
því ég veit að þú mundir stinga upp beðin fyrir mig.
Kær kveðja til þín, elsku sonur
Pabbi

Eftir örfáa daga, fékk hann bréf frá syni sínum :


Elsku Pabbi
Í GUÐANNA BÆNUM, ekki stinga upp garðinn !

Ég gróf ránsfenginn og byssurnar þar !

Þinn
Bubbi


Í birtingu morguninn eftir komu hópar lögregluþjóna frá embætti
Ríkislögreglustjóra og Selfosslögreglunni og umbyltu öllum beðunum,
en fundu hvorki þýfi né byssur.
Þeir báðu gamla manninn afsökunar og hurfu á braut.

Sama daginn fékk hann annað bréf frá syninum :

Elsku pabbi
 Drífðu nú í því að setja niður kartöflurnar.
Við núverandi aðstæður get ég ekki gert betur.
Þinn elskandi sonur
Bubbi


Þegar karlmenn grilla !
 
Eina matreiðslan sem hinn "sanni" karlmaður tekur sér fyrir
hendur er að standa við grillið; í kvöldsólinni og með bjór í hendi.
 En þegar hann býðst til að taka til starfa við grillið tekur við óhjákvæmileg röð
atburða... 
1. Konan fer í búðina.
2. Konan útbýr salatið og eftirréttinn.
3. Konan undirbýr kjötið fyrir hamskiptin, leggur það á disk
með nauðsynlegum útbúnaði og færir það manninum sem stendur
hnarreistur við grillið drekkandi bjór. 
4. Maðurinn leggur kjötið á grillið. 
5. Konan fer inn fyrir og leggur á borð og aðgætir meðlætið. 
6. Konan fer út til að láta manninn vita að kjötið er að
brenna. 
7. Maðurinn grípur kjötið af grillinu og réttir konunni. 
8. Konan leggur síðustu höndina á aðalréttinn og leggur hann á
borðið. 
9. Þegar allir hafa matast tekur hún af borðinu og þvær upp
diskana. 
10. Maðurinn spyr konuna hvort hún hafi ekki notið þess að fá
"kærkomið frí" frá matseldinni. 
Og samkvæmt viðbrögðum konunnar leggur hann út frá þeirri
Viðteknu skoðun karlmanna að ómögulegt sé að uppfylla væntingar sumra
kvenna!


Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 54991
Samtals gestir: 14442
Tölur uppfærðar: 23.5.2012 19:05:00