Færslur: 2009 Júní

15.06.2009 13:02

Fiðrildi og gúmmíhanski.



Þetta litríka fiðrildi var eitthvað spennt fyrir gúmmíhanskanum mínum sem ég hafði lagt frá mér er ég var að stússa í "garðinum" við "sumarbústaðinn". Það hefur trúlega haldið að þetta skærgula fyrirbæri væri myndarlegt blóm. Mér tókst að skjótast inn og ná í myndavélina og zooma á fiðrildið áður en það varð fyrir vonbrigðum með "blómið" og flögraði í burtu og yfir í næsta garð.
    Flettingar í dag: 2
    Gestir í dag: 2
    Flettingar í gær: 16
    Gestir í gær: 10
    Samtals flettingar: 129989
    Samtals gestir: 34175
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 04:57:05