Færslur: 2009 September

26.09.2009 10:12

Haust

Ég held að haustið sé minn uppáhalds árstími. Uppskera ýmiskonar, litirnir, ljósið, skuggarnir.....

Var að hlusta á fallegt lag "Haustlag" með honum Hilmari frænda mínum, á www.myspace.com/gardarsson


05.09.2009 19:07

Textílsýning

Í dag verður opnuð í gamla kaupfélagshúsinu  á Skagaströnd, sýningin Þverskurður 2 og eru það félagar úr Textílfélaginu sem sýna þar verk sín en Textílfélagið á 35 ára afmæli í ár.  Á Skagaströnd hefur verið sett upp listamiðstöð í auðum og tómum fiskvinnsluhúsum.  Eru þar gestavinnustofur og íbúðir þannig að myndlistarmenn geta komið víða að og unnið þar að list sinni í nokkra mánuði. Skilst mér að nú þegar hafi margir myndlistarmenn, aðallega erlendir, dvalið þar og nýtt sér aðstöðuna en listamiðstöðin opnaði 2008. Flott framtak! Sjá nánar www.neslist.is
Félögum úr Textílfélaginu var boðið að senda inn verk á þessa sýningu og vona ég að þátttaka sé góð. Ég sendi þessa myndröð  og hafi pósturinn skilað pakkanum á tilsettum tíma ættu þær núna að hanga í gamla kaupfélagshúsinu á Skagaströnd út mánuinn.  Hér er um að ræða smáverk sem unnin eru í blandaða tækni þar sem ég notaði efni s.s. pappír,  acrylmálningu, bómull, ull, koparvír og fl.
Ég held svo bara áfram að horfa á hin ýmsu auðu og tómu atvinnuhúsnæði grotna niður hér  í kringum mig (salthúsið samt ánægjuleg undantekning) og samgleðst þeim þarna fyrir norðan að hafa dug, þor og framsýni til að gefa auðu atvinnuhúsnæði nýtt líf sem skilar sér trúlega í fjölbreyttara og meningarlegra lífi á staðnum.

    Flettingar í dag: 2
    Gestir í dag: 2
    Flettingar í gær: 16
    Gestir í gær: 10
    Samtals flettingar: 129989
    Samtals gestir: 34175
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 04:57:05