Gestabók
9.11.2008 kl. 11:57
Hæ
Takk fyrir mig. Hér er margt fallegt að sjá. Og kærar þakkir fyrir kartöfluuppskriftina sem ég ætlaði að vera búin að prufa fyrir löngu. Ætla að láta verða af því í kvöld.
Anna Hrefnu
4.6.2008 kl. 12:11
hæhæ
bara að láta vita af mér kvitti kvitt kveðja frá Ísafirði
Sigrún Sig
2.4.2008 kl. 12:57
Hæ gamla vinkona.
Jæja þá er komið sumar hér í danaveldi þokkalega heitt og bara alveg ágætt, eeennnnþað getur líka ringt hér samanber síðasta sumar og vonum við að það endurtaki sig ekki.
Jæja þá er það spurningin hvenæe verður þú á ferðinn hérna er alveg búin að gleyma því (og þjáist ekki af gleymsku light)
gaman væri að heyra frá þér vonandi eru allir hressir á stöddanum bið að heilsa.
inga Dóra
inga Dóra
3.2.2008 kl. 13:59
Elsku Sólrún ástarþakkir fyrir kveðjuna á heimasíðunni okkar.
Við erum staðsett c.a 50 km suðaustur af köben það tekur svona 35 mín að keyra til okkar svor kemur líka lest hingað til Haslev.
Við erum líka staðsett við hliðina á bæ sem heitir Holme-Olstrup sem er með hið fræga Bon-bon land sem er orðið eins frægt og Tivoli.
annars verðum við bara í bandi það væri frábært að fá þig(ykkur) í heimsókn.
Sjáumst Inga Dóra
Inga Dóra
30.1.2008 kl. 14:43
Gömul vinkona
Sæl gamla vinkona(ekki að þú sér neitt gömul frekar en ég svona rúmmmmmmlega 25)mikið þakka ég þér vel fyrir jólakortið það var alveg yndislegt að fá línu frá þér.
Annars er allt gott að frétta af okkur við höfum það gott innanum börn og barnabörn þó svo að Karen búi ennþá í Svíþjóð (uppsala)við eigum orðið 6 barnabörn og allt stelpur ég held bara að við kunnum ekkert annað. Ég hef lesið á mbl.is að það sé búið að verq mikill snjór á íslandi í vetur og ég get ekki sagt að ég sakni hans nema kannski að það er miklu bjartara þegar allt er hvítt. Hérna er búið að vera milt veður og téin farin að vakna og svo fann ég tvö mygg inni í eldhúsi þau hafa sjálfsagt ætlað að fá sér smá næringu hjá mer en það tókst ekki.
Ég er alltaf að kenna hér og er það ósköp líkt og á íslandi bæði óþæg og þæg börn í næstu viku förum við svo í viku vetrarfrí það verður bara æði, það er alltaf verið að segja að skólin í dk sé lengri en á íslandi en það held ég ekki það munar kannski 10 dögum hér er nafnilega bæði viku vetrar og haustfrí ásamt öðru fríi sem leggst til.
Jæja svo að þú ert að koma til danaveldis í sumar þér er velkomið að koma í heimsókn til okkar við höfum flott gestaherbergi og svo búum við bara u.þ.b 50 km frá köben sem er ekki langt.
jæja skvísi vonandi hafið þið það gott hjónakornin og börn og barnabörn líka (vá við erum ekkert smá rík) verðum í sambandi bið að heilsa öllum sem vilja þekkja mig.
Kveðja Inga Dóra
inga Dóra
1.10.2007 kl. 11:41
Til hamingju
með vefsíðu Sallerís Snærósar og opnum Grafíksetursins á Stöðvarfirði
Garðar Harðar
15.9.2007 kl. 15:03
Takk fyrir innlitið Kristborg. Núna er verið að hamast að klára verkstæðið og meiningin að opna Grafíksetrið ásamt sýningu í galleríinu 28. sept. Eftir það förum við að spá í skipulagningu námskeiða og byrjum trúlega með eitthvað fyrir jól. Ég er búin að finna bókina (um collage) sem ég var að segja þér frá.
Sólrún
13.9.2007 kl. 22:58
Hver er staðan?
Hæ hæ
Er svo forvitin um gang mála varðandi námskeiðin, er komin einhver dagsetning á það hvenær herlegheitin byrja
Kveðja Kristborg
Kristborg
23.7.2007 kl. 22:05
hæhæ
læt vita af mér öðru hvoru, kíki við á hverjum degi. kvitt kvitt.....
Sigrún
8.5.2007 kl. 15:33
hæhæ
kvitti kvitt í gestabók... Kveðja Málfríður:)
Málfríður
6.5.2007 kl. 12:06
Hæ.
Hæ Fjóla hér. Rakst inná síðuna þína.
Kv Fjóla
Fjóla Þorsteins
22.4.2007 kl. 13:30
Takk Sigrún. Ég er einmitt í Rvk. núna yfir helgina að kynnast litla drengnum aðeins. Hann er náttúrulega algjört gull eins og þau eru alltaf blessuð börnin.
Sólrún
20.4.2007 kl. 18:01
barn ???'
innilegar hamingjuóskir með barnabarnið frétti að það hefði fæðst á afmælisdegi Hönnu Gerðar kv. Sigrún
Sigrún Sigurðardóttir
7.4.2007 kl. 12:22
??????
hæhæ hvaða viðurkenningu er Þóra Björk að tala um ? á ekki að deila með okkur hinum?
annars Gleðilega Páska.
Sigrún Sig
20.3.2007 kl. 20:44
Til hamingju með viðurkenninguna, megi ykkur farnast sem allra best. Þið eruð vel að þessu komin. Þetta er frábært. Enn og aftur til hamingju.
Þóra Björk
17.3.2007 kl. 23:07
hello
bara að láta vita af mér kvitti kvitt...
Sigrún Sig
21.2.2007 kl. 20:36
HæHÆ
Vá hvað ég er að elska myndirnar þínar! Pastel myndirnar eru geðveikar sérstaklega hrifin af 'Súrheysgryfja' Vá hvað mig langar alltíeinu að fríka út og fara að mála og teikna mitt! það er bara svo mikið að gera hjá manni Ég hef ekki haft neinn tíma til að teikna fyrir sjálfa mig.. bara aðra.. en já þetta eru allt yndislegar myndir! Ef þú ert að fara að halda sýningu einhversstaðar þá vil ég mæta!
Málfríður
5.2.2007 kl. 21:32
Þakka ykkur. Ég reyni að halda mig við efnið.
Sólrún
5.2.2007 kl. 19:47
Sólrún mín! Frábærar myndir. Gaman verður að geta fylgst með þér. Vertu bara svo dugleg að uppfæra síðuna, koma svo!Siggi er líka stórhrifinn! Kysstu Rikka frá mér.
Halla Hafdís
5.2.2007 kl. 10:06
Til hamingju....
....með þessa síðu, það var löngu kominn tími fyrir þetta
Garðar Harðar
4.2.2007 kl. 18:30
Tack Bittan! Så trevligt att du tittade på min hemsida. Det kommer nog flera bilder så småningom.
Sólrún
4.2.2007 kl. 16:43
Hej solla.
Vilka fina bilder du har tagit.det var lite sämre med att förstå texten.
Hälningar bittan
bittan nelimarkka
31.1.2007 kl. 8:13
Takk ykkur fyrir að "stinga niður penna" í gestabókina mína!
Sólrún
30.1.2007 kl. 20:46
Ég verð nú að kvitta í gestabókina og óska þér til hamingju aftur, var að skoða myndirnar og þær eru sko góðar.
Áslaug
30.1.2007 kl. 12:35
kveðja frá Þingeyri
sæl Sólrún. til hamingju með síðuna þína.Það var mikið að þú fékkst þér heimasíðu, við erum búnar að bíða eftir því lengi ég og Málfríður, hugsum alltaf til þín öðru hvoru svo að núna getum við farið að fylgjast með hvað þú ert að bardúsa..en endilega kíktu á þessa síðu : http://www.123.is/tattoooglist kveðja Sigrún
Sigrún Sigurðardóttir
30.1.2007 kl. 11:30
Glæsilegt!
Kæra systa. Það verður gaman að fylgjast með þessari síðu og geta skoðað myndirnar þínar á netinu.
Solla sys
30.1.2007 kl. 10:23
Sólrún til hamingju,falleg verk eftir þig eins og alltaf
kveðja Kristín mágkona
Kristín
