Blogg
12.3.2010
Bekkjakvöld
Setti inn myndir frá því í gærkvöldi þægar við vorum með rosalega skemmtilegt bekkjakvöld. Einning skellti ég inn nokkrum myndum sem ég tók rétt áðan. 2. og 3. bekkur er í leikvali og 1. bekkur í danskennslu hjá Pálínu.
Endilega kíkið í albúmið.
5.3.2010
Fuglar
Í næstu viku förum við að skoða hvaða fuglar eru á Íslandi.
Hér er flott síða sem þið getið skoðað heima.
Fuglar á nams.is
Hér er flott síða sem þið getið skoðað heima.
Fuglar á nams.is
26.2.2010
Skjaldamerki Íslands
Við erum á fullu að læra um Ísland. Í morgun vorum við að skoða skjaldamerki Íslands og þjóðsöguna sem því fylgir.
Sagan segir að einu sinni fyrir langa löngu hafi útlendur kóngur ætlað að senda her til Íslands. Hann bað galdramann að fara á undan og njósna á landinu. Galdramaðurinn breytti sér í hval og synti til Íslands. Þegar galdramaðurinn í hvalslíkinu kom að landinu kom hann að Vopnafirði og þar tók á móti honum Dreki mikill og varnaði honum uppgöngu. Norður í Eyjafirði kom á móti honum Gammur - stór fugl. Vestur á Breiðarfirði kom Griðungur - stórt naut á móti hvalnum og á Suðurlandi var það Bergrisi.
Hvalurinn fór aftur og hitti kóng sinn og sagði að ekki væri hægt að senda her til Íslands.

25.2.2010
Smíðaverkefni.
Komnar inn myndir af smíðaverkefnum nemenda í 1. bekk.
Kveðja
Jóhanna Kr. Hauksd.
Kveðja
Jóhanna Kr. Hauksd.
23.2.2010
Land og þjóð ;)
Við höfum verið í landafræði í þematímum að undanförnu. Við rákumst á vef á nams.is sem krakkarnir gætu haft gaman af að skoða.
Kortavefur
Þarna getið þið skoðað allt sem við höfum verið að læra um.
Til dæmis fundið bæjarnöfn og ..
- Hekla
- Hvannadalshnúkur
- Þingvallavatn
- Herðubreið
- Þjórsá
- Gullfoss
- Geysir
Svo ef þið klikkið á kortið á einhvern ákveðin stað. Til dæmis Heklu, þá koma upplýsingar fyrir neðan kortið.
Endilega kíkið á þetta.
Kv. Gunna og Olla
Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 52
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 24879
Samtals gestir: 7239
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 15:23:37